Viðbrögð Bjarna Harðarsonar skiljanleg
14.3.2008 | 14:16
Í DV í dag kemur fram að Bjarni Harðarson þingmaður
Framsóknarflokksins hafi sent þingmönnum og trúnaðar-
mönnum flokksins bréf, þar sem hann m.a gerir athuga-
semd við yfirlýsingu Valgerðar Sverrisdóttir vara-formanns
flokksins á Iðnþingi fyrir skömmu. Þar hvatti hún til aðildar
að Evrópusambandinu, upptöku evru, og sló hugmyndir
Bjarna og annara út af borðinu um að skoðaður yrði t.d
möguleiki á upptöku svissnesks franka.
Í bréfinu tiltekur Bjarni m.a nokkur atriði í ræðu Valgerðar
sem hann lýsir sig algjörlega ósamála og telur Valgerði
vel geta hafa sleppt að minnast á án þess að ræðan missti
marks, enda væri ýmislegt í máli hennar fyrst og fremst til
þess fallið að auglýsa skoðanaágreining meðal framsóknar-
manna, segir í Dv. Þá minnir Bjarni réttilega á ,,að á sama
tíma birtist könnun sem sýnir að fylgið við Evrópusambandið
er hvergi minna en í okkar flokki".
Viðbrögð Bjarna Harðarsonar eru afar eðlileg og skiljanleg.
Yfirlýsing Valgerðar á Iðnþinginu í s.l viku er ekkert annað en
bein aðför að sitjandi formanni, viðhorfum hans í Evrópu-
málum, og raunar ÞVERT á flokkssamþykktir og stefnu flokk-
sins. Lofsöngur Björns Inga Hrafssonar um framtíðarsýn
Halldórs Ásgrímssonar um að Ísland yrði orðið aðildarríki
ESB 2012 og ummæli hans í Sílfri Egils um.s.l helgi bendir
sterklega til að atlagan að Guðna Ágússyni sé nú hafin, og
að öllu skuli nú tjaldað til að ESB-væða flokkinn fyrir fullt og
allt.
Ljóst er að deilur innan flokksforystu Framsóknarflokksins
í Evrópumálum hafa staðið Framsóknarflokknum verulega fyrir
þrifum undanfarin ár, og átt stóran þátt í ósigri hans í síðustu
kosningum. ESB-daður Halldórs Ásgrímssonar stórskaðaði flokk-
inn, og flæmdi þúsundir þjóðhollra kjósenda frá flokknum. Því
ekki má gleyma að hin klassiska framsóknarstefna hefur ætíð
byggst á ÞJÓÐLEGUM VIÐHORFUM allt frá stofnun flokksins.
ESB-kindli Halldórs virðist samt eiga að halda á lofti, og nú undir
forystu vara-formannsins. Allir sjá að slíkt gengur alls ekki lengur.
Niðurstaða VERÐUR því að fást í þetta stórpólitíska mál innan flokk-
sins, ef flokkurinn á að eiga nokkra möguleika á að ná sér á strik
aftur. Því fyrr, þeim mun betra. Því gjörsamlega útilokað er að
flokksforystan geti talað út og suður í svona pólititísku stórmáli
öllu lengur...
Valgerður og hinn fámenni ESB-hópur kringum hana hafa nú
kallað á þetta uppgjör.
Við því kalli hlýtur að verða brugðist!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Guðmundur.
Þetta sólóspil Valgerðar hefur ekki farið framhjá neinum og ekki undrunarefni að menn spyrji um slíkt.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 15.3.2008 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.