Búið að ESB-væða utanríkisstefnuna sbr.Tíbet ?

 

   Núverandi utanríkisráðherra  hefur oftar  en  ekki gumað að því
að ætla sér að reka sjálfstæða utanríkisstefnu svo hjákátlegt sem
það nú er. Því sami ráðherra vill ganga í ESB og þar með  að undir-
gangast utanríkisstefnu þess að verulegu leyti. Eða er kannski
þegar komið að því?

  Fyrir þrem  dögum gaf Evrópusambandið út yfirlýsingu um ástandið
í Tíbet þar sem öll mannréttindabrot voru þar hörmuð. Eins og allar
þjóðir harma  ekki slíkt.  Hins vegar var hvergi ályktað um sjálfstæðis-
kröfur Tíbetbúa en um það snúast átökin nú. Því í Tíbet býr sérstök
þjóð með sína menningu og tungu. Til samanburðar við Kosovo býr
þar ekki sérstök þjóð og því hvorki  með séstaka tungu og menningu.
Íslenzka utanríkisráðuneytið var hins vegar fljótt að samþykkja sjálf-
stæði þess á dögunum.

  En hvers vegna í ósköpunum var Ísland allt í einu orðið aðili að
þessari yfirlýsingu Evrópusambands um Tíbet? Hvers vegna gaf
íslenzka utanríkisráðuneytið ekki út sína SJÁLFSTÆÐU  yfirlýsingu á
ÍSLENZKUM FORSENDUM? Eða hvað er eiginlega í gangi hjá þessu
utanríkisráðuneyti okkar? Er búið kannski að binda stefnu þess
alfarið við stefnu ESB í utanríkismálum? Í anda hinna ESB-sinnuðu
krata? Og það  án allrar umræðu?  Og hefur Sjálfstæðisflokkurinn
samþykkt það? 

   Hvers vegna þá öll þessi OFUR-ÞÖGN um málið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábært hjá þér, Guðmundur Jónas, hittir hér naglann á höfuðið. Þjóð eins og við Íslendingar á að taka afstöðu með sjálfstæði þjóða, sem sviptar hafa verið réttindum sínum af erlendu kúgunarvaldi. Það er hægt að vera miklu skorinorðari í stuðningsyfirlýsingu við Tíbeta en ESB vogaði sér að vera, kannski með eigin viðskiptahagsmuni ofar í huga en fullkomna hreinskilni um það sem hefur átt sér stað í Tíbet.

En þessi nýja birtingarmynd "sjálfstæðrar utanríkisstefnu" af hálfu Samfylkingar-ráðþjónsins kemur mér sízt á óvart – þetta kratalið virðist fúst til að gleypa við hverju sem kemur frá Brussel ... og gera sér það að góðu. Eru þau ekki bara að æfa sig fyrir hlutverkið, lítilþægnina sem þau koma til með að þurfa að sýna, þegar eða öllu heldur ef þeim tekst að landa þessum glæsilega Norður-Atlantshafslaxi inn á háborðið hjá þeim í Brussel?

Jón Valur Jensson, 22.3.2008 kl. 19:44

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Getið þið félagar nefnt mér lönd sem hafa ályktað eða sent frá sér stuðning við sjálfstæðiskröfu Tíbeta nú síðustu vikur?

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.3.2008 kl. 20:54

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Jón Valur. Magnús.  Jón Baldin Hannibalsson  hrósa ég
ekki oft. En hann lét Ísland vera fyrsta ríki heims að viðurkenna
sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Og húrra fyrir því! Þarna voru
undirokaðar ÞJÓÐIR  kúgaðar af kommúnistum NÁKVÆMLEGA eins
og Tíbet er nú. En Magnús. Hvers vegna í ÓSKÖPUNUM felur Ingibjörg Ísland inní yfirlýsingu ESB?  Formlega erum við alla vega
ekki gengin í ESB? Eða hvað?  Hversvegna í ÓSKOPUNUM getur
hún ekki tjáð sig FYRIR ÍSLANDS HÖND varðandi Tíbet? Hún þarf
ekki að viðurkenna sjálfstæði þess. En hún geur LÁTIÐ RÖDD
ÍSLANDS HEYRAST!  Þvílíkur niðurlægjuháttur! Og þvílík ÓSJÁLFSTÆÐ
íslenzk utanríkisstefna!! Sé að Ingibjörg veldur engan veginn
starfinu. Hún virðist ekki hafa snefil af ÞJÓÐLEGUM metnaði til
að valda því! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.3.2008 kl. 21:15

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi hér pistil eftir Björn Bjarnason varðandi Tíbet. Góður pistill hjá Birni

Þar segir m.a.

"Í The Wall Street Journal ræðir Peter Wonacott við Tsewang Rigzin, forseta ungliðasamtaka útlægra Tíbeta, en í þeim eru um 30.000 manns. Hann er 37 ára og fæddur utan Tíbet. Foreldrar hans flúðu þaðan til Indlands fyrir tæpum 50 árum. Rigzin ólst upp í Suður-Indlandi en fluttist síðan til Bandaríkjanna. Þaðan sneri hann til Dharmsala á Indlandi árið 2007, þegar hann var kjörinn formaður samtakanna.

Útlagastjórn Tíbets hefur aðsetur í Dharmsala ásamt Dalai Lama. Rigzin og félagar hans lýsa andstöðu við þá stefnu hennar, að Tíbetar eigi ekki að krefjast fulls sjálfstæðis. Rigzin segist ekki sjá, að fólk mótmæli á götum úti í þágu einhverjar miðjuleiðar. Dalai Lama segist munu hverfa frá forystu útlagastjórnarinnar, standi vilji valdbeitingar til að reka Kínverja frá Tíbet. Hann segir ofbeldi jafngilda sjálfsmorði fyrir Tíbeta."

Hvet menn til að lesa hana alla. Hún varpar öðru ljósi á stöðu mála í Tibet.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.3.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband