Er fjáraustur utanríkisráðhera engin takmörk sett ?


   Í hvers konar eyðlsuheimi er utanríkisráðherra eiginlega ? Nú á
að ráða tvo fyrrum hæstaréttardómara til að yfirfara margra ára
gömul gögn um árás hryðjuverkamanna í Kabúl á íslenzka friðar-
gæsluliða. Þeir sluppu, en því miður létu tveir lífið í árásini. Þótt
sprengjuárásin var ALFARIÐ hryðjuverkamönnum að kenna, ætlar
utanríkisráðherra  samt, mörgum  árum  seinna, að láta fara yfir
málið. Með ærnum tilkostnaði fyrir okkur skattborgara.  Til hvers ?

   Þetta kom fram á Alþingi í gær þegar utanríkisráðherra var að
svara fyrirspurn frá þingmanni Vinstri-grænna sem vildi vita hvort
ríkið væri skaðabótaskylt. Svo fátvitlega sem spurt var. Utanríkis-
ráðherra taldi svo ekki vera eðlilega vegna þess að enginn af
íslenzku friðargæslumönnum hleypti að skotum eða sakaði aðra.  
- Samt á að fara yfir málið með því að ráða tvo fyrrum hæðsta-
réttardómara til þess. Til að þóknast Vinstri grænum, eða hvað ?

   Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra hefur að undanförnu verið
harðlega gagnrýnd fyrir óhóflega eyðslu í allskyns hégóma, prjál
og tilgangslaus verkefni á sviðum utanríkisráðuneytisins.

  Dæmið um þetta Kabúl-mál er lifandi dæmi um slíkt  algjört
RUGL!

 
mbl.is Fyrrum hæstaréttardómarar yfirfara gögn um árásina í Kabúl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alveg sammála, bókstaflega stórfurðuleg aðferðafræði sem maður veit hreinlega ekki hvaðan fær stað.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.4.2008 kl. 02:07

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er þetta ekki fólkið sem er að leggja að almenningi að herða sultarólina.  Þá á greinilega ekki að herða neitt að þeim, því þau víkka sín göt um það sem við hin þurfum að þrengja að, svei því bara.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2008 kl. 10:35

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sósíaldemókratisminn í hnotskurn !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.4.2008 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband