Landbúnaðarráðherra á villigötum !


   Landbúnaðarráðherra  getur  ekki  valið verri  tíma  en  nú að
lögfesta matvælalög Evrópusambandsins. Í  raun kallar  ekkert
á slíkt. Allra síst í því efnahagsumhverfi sem við búum við í dag,
og með tilliti til framtíðarhorfa í matvælamálum heimsins. Land-
búnaðarráðherra er því á villigötum í þessu máli.

   Því eru mótmæli og varnaðarorð Guðna Ágústssonar formanns
Framsóknarflokksins afar réttmæt. Nánast er um aðför að ræða
gegn atvinnuöryggi þúsunda manna. Og það á þeim landssvæð-
um sem hvað lökust standa í atvinnulegu tilliti. Þá er allt matvæla-
öryggi og búfjársjúkdómavarnir teflt í mikla tvísýnu.

   Það er ekki nema rúmt hálfr ár síðan að Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra stórskerti aflaheimildir sem verst komu
niður á sjávarbyggðum víðsvegar um land. Nú kemur þessi sami
ráðherra með óþarfa lögfestingu á matvælalögum ESB sem fyrir-
sjáanlegt er að munu hafa mjög neikvæð áhrif á kjötvinnslur víða
um land, og stofna þar með atvinnu þúsunda manna í hættu.

  Hvað gengur ráðherra og ríkisstjórninni eiginlega til ?

  Og það á slíkum óvissutímum og nú eru !
mbl.is Segir landbúnaði og neytendum kunni að vera ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta er sannarlegt feilspor hjá ráðherra og ekki á nokkurn hátt þegnum þjóðarinnar til framdráttar. Ef að landbúnaður legst af á íslandi þá verðum við orðin öðrum þjóðum algjörlega háð varðandi slíkar afurðir. Það að ætla að koma í veg fyrir að við getum verið sjálfum okkur næg í matvælaframleiðslu á tímum mikillar óvissu um matvælaverð í heiminum er fásinna að mínu mati. Hvað ráðherra og ríkisstjórn gengur til....? Þeim getur ekki gengið annað til en að vilja að við verðum öðrum háð. Allar þjóðir verða að vera interdependant til þess að hægt sé að þröngva upp á okkur meiri miðstýringu... Nú þegar Evrópusambandið er orðið að veruleika og verið er að fullkomna plön um önnur slík sambönd, North American Union, African Union og Asia Cooperation Dialogue, þá getur maður ekki annað en velt því fyrir sér hvenær þessi fyrirbæri eiga svo öll að sameinast undir einu bandalaginu enn?? Hvað höfum við þá?

Heimir Arnar Birgisson (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi sjávarútvegsráðherra og nú líka landbúnaðarráðherra, virðist ætla að klára verkið fyrir ríkisstjórnina, þ.e. að eyða byggðum landsins, hafi hann skömm fyrir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2008 kl. 18:26

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Já maður skilur ráðherra ALLS EKKI ! Alveg gjörsamlega á skjön við
allar þær mótvægisaðgerðir sem ríkisstjórnin gumaði sig svo af í
haust, en voru hvorki fugl né fiskur.  Og svo kemur þetta ráðherra
með þetta rugl ! 

Þeim er ekki sjálfrátt í þessari ríkisstjórn !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 17.4.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband