Þær frönsku að koma !

 

   Á mánudaginn munu fjórar franskar orustuþotur koma til
Íslands til að sinna loftrýmiseftirliti í samræmi við samkomu-
lag NATO og íslenskra stjórnvalda. Um 120 manns munu
vera í flugsveitinni, og mun sinna eftirlitinu í 6 vikur.

   Íslendingar hafa þegar samið við Dani og Norðmenn um sam-
starf í varnarmálum, og standa viðræður yfir við Kanadamenn.
Þá hafa Þjóðverjar sýnt áhuga á slíku samstarfi, en Þýzkar her-
flugvélar skáru sig úr með fjölda millilendinga þegar banda-
riski herinn var hér á landi. Þjóðverjar hafa yfir að ráða mjög
öflugum flugher, sem mikill fengur yrði að fá til að sinna loft-
rýmiseftirliti kringum Ísland. Og ekki sakar að Þjóðverjar hafa
ætíð verið einstök vinarþjóð  Íslendinga.

   Samstarf í öryggis- og varnarmálum hlýtur ætíð að byggjast
á vináttu og trausti. Danir, Norðmenn, Þjóðverjar og Kanada-
menn verðskulda slíka vináttu og traust, og að slíkum þjóðum
hljótum við að halla okkur öðrum fremur þegar að jafn mikilvæg-
um málum kemur og öryggis-og varnarmálum.

  Gleymum því svo ekki að Rússar hafa ætíð sýnt Íslendingum
mikla vináttu- og virðingu. Öryggissamvinna við Rússa  á N-
Atlantshafi er því ekki bara sjálfsögð, hún er mjög nauðsýn-
leg á komandi misserum og árum.

  Íslendingar eiga fyrst og fremst að byggja öryggis- og varnar-
málin á EIGIN forsendum og hagsmunum, eins og raunar allar
þjóðir gera. Eftir brotthvarf bandariksa hersins hlýtur sá mála-
flokkur að stórvaxa næstu misseri og ár. Markviss uppbygging
Landhegisgæslu, öryggissveita og varaliðs lögreglu, ásamt
öflugri greiningardeild, leyniþjónustu, er sjálfsagt framhald af
slíku ferli........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband