Viðurkennir frumkvæðaleysi Samfylkingarinnar


  Um leið og formaður Samfylkingarinnar fagnar frumkvæði ASÍ um
að eitthvað verði gert af viti í efnahagsmálum, viðurkennir formaður
Samfylkingarinnar um leið úrræða- og frumkvæðaleysi ríkisstjórnar-
innar, og þá alveg sérstaklega Samfylkingarinnar í efnahagsmálum.
Skilningsleysi Samfylkingarinnar á efnahagsmálum  er ALGJÖRT, enda
er Samfylkingin orðin einn stærsti hluti af efnahagsvandanum. Þvælist
meiriháttar fyrir bráðnauðsynlegum stórframkvæmdum, eins og dæmin
sanna um álverið við Húsavík, en sú mikilvæga framkvæmd er nú í algjöru
uppnámi fyrir tilstuðla umhverfisráðherra Samfylkingarinnar. Enda eina
efnahagsúrræði Samfylkingarinnar í efnahagsmálum fólgin í algörri upp-
gjöf á ábyrgri peningamálastefnu, stórskertu fullveldi, og afhendingu á  
okkar helstu auðlindum í hendur útlendinga með aðild Íslands að ESB
og upptöku evru. 

   Hversu lengi enn ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að bjóða þjóðinni upp á
þessa úrræðalausu ríkisstjórn,  þar sem annar  Stjórnarflokkurinn, Sam-
fylkingin,  hefur  ENGA trú  á ÍSLENZKRI framtíð !
mbl.is Fagnar frumkvæði ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að minna þig á að Sjálfstæðisflokkurinn er með forsætisráðuneytið og fjármálaráðuneyti. Þetta eru megin embætti í ákvarðanatökum varðandi efnahagsmál.

Eins þá er ljóst að álver á Bakka á ekki að taka til starfa fyrr en um 2012. Engin ákvörðun sem tekin hefur verið tefur það. Álverið á Bakka leysir ekki ástandið núna. Ekki láta Frikka Sóf og co ljúga til um að umhverfismatið tefji framkvæmdir um allta að ár. Þessi umhverfismöt eru þegar komin í vinnslu en nú þarf bara að tengja þau saman.

Það er nú allt betra en að fá framsókn í stjórn sem boðar stífar hömlur á allan innflutning á ódýrari matvælum fyrir okkur og sækir helst í að gefa vinum sínum í S hópnum restina af ríkiseignum. Sbr. Búnaðarbanka á sínum tíma. Sem og að mala undir sína menn sbr. Finn Ingólfsson og Halldór Ásgrímsson og fleiri.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.8.2008 kl. 23:39

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Magnús.

Bara að minna þig líka á að Samfylkingin er 100% í ríkisstjórninni og ber því
100% ábyrgð á allri hennar úrræðaleysi é efnahagsmálum og mestri kjaraskerðingu þjóðarinnar, launþega, öryrkja og aldraða um árabil.  Forstjóri Landsvirkjunar óttasta a.m.k árs töf vegna seinkana Samfylkingarinnar  á framkvæmdum við Bakka, sem setur allt málið í mikla  upplausn og óvissu. Gæti blásið það út af borðinu.
Samfylkingin er því orðin helsti dragbíturinn á íslenzkt atvinnulíf, sem m.a
vill RÚSTA íslenzkum landbúnaði og vísa þúsundum manna sem í honum
starfa út á Guð og gaddinn. Allar ÞJÓÐIR VILJA VERJA OG STYRKJA sinn
landbúnað, en Samfylkingin vill RÚSTA honum eins og raunar ALLT sem
íslenzkt er. Er hér EKKI málvari Hallórs Ás né Ingólfs né nokkurs annars.
Tala hér einungis út frá MÍNUM persónulegum pólitiskum skoðunum og viðhorfum, enda OFTAR en ekki verið óssammála t.d Halldóri Ásgrimssyni
í fjölmörgum pólitískum stórmálum meðan hann var í pólitík.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 9.8.2008 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband