Bág staða öryrkja undir stjórn Samfylkingar


   Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum sínum yfir
slæmri fjárhagsstöðu öryrkja. Aðalástæðan sé vaxandi verðbólga sem reyn-
ist öryrkjum illmögulegt að láta enda ná saman. - En þetta á ekki bara við
öryrkja, þetta á við alla sem standa höllum fæti í þjóðfélaginu. Kjör þessa
fólks  hafa snarversnað  s.l ár, þrátt fyrir ýmissa aðgerða stjórnvalda til
að bæta kjör þessara þjóðfélagshópa. Má segja að staða þessara hópa
hafi aldrei verið verri í áratugi.

  Og allt skuli þetta gerast undir stjórn og ábyrgðar Jafnaðarmannaflokks
Íslands, Samfylkingunni. Flokki sem lofaði stórbættum kjörum til handa
hinum verrsettu fyrir kosningar.  Jóhanna Sigurðardóttir núverandi fél-
agsmálaráðherra fór þar fremst í loforðaflauminu. Hver er útskýring
hennar nú á stórversnandi lífskjörum hinna verst settu undir HENNAR
stjórn? Hvar eru nú allar efndirnar um að hagur þessa fólks verði stór-
bættur kæmist Samfylkingin og Jóhanna til valda ?´Ætti ekki stjórnmála-
maður eins og Jóhanna Sigurðurðardóttir nú að segja af sér þegar stað-
reyndirnar blasa nú við og sem eru svo GJÖRSAMLEGA þvert á það sem
lofað var fyrir kosningar?

   Ekki geta svikin verið út af kreppunni á Íslandi, því formaður Samfylk-
ingarinnar lýsti því yfir fyrir örfáaum dögum að á Íslandi í dag væri engin
kreppa. Og varla voru ríkisfjármálin í klandri þegar Samfylkingin komst
til valda? Höfðu reyndar aldrei staðið eins vel í sögu lýðveldisins!
mbl.is ÖBÍ: Þungar áhyggjur af fjárhagsstöðu öryrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Samfylkingin hefur stórbætt kjör öryrkja: t.d.

Lagabreytingarnar eru byggðar á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí 2007 og byggjast á niðurstöðum verkefnisstjórnar félagsmálaráðherra frá 30. nóvember 2007 og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. desember síðastliðinn. Breytingarnar munu taka gildi í þremur áföngum. Helstu nýmæli í lögunum eru eftirfarandi:

  • Skerðing bóta vegna tekna maka verður að fullu afnumin frá og með 1. apríl.
  • Sett verður 90.000 króna frítekjumark á fjármagnstekjur elli- og örorkulífeyrisþega frá 1. apríl, meðal annars í þeim tilgangi að draga úr ofgreiðslum bóta.
  • Vasapeningar til einstaklinga á dvalar- og hjúkrunarheimilum munu hækka frá 1. apríl 2008.
  • Skerðingarhlutfall ellilífeyris verður lækkað úr 30% í 25% frá 1. apríl og frítekjumark hækkað frá sama tíma.
  • Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega 67–70 ára verður hækkað í 100.000 krónur á mánuði frá 1. júlí.
  • Sett verður 300.000 króna frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur örorkulífeyrisþega frá 1. júlí.
  • Aldurstengd örorkuuppbót hækkar frá 1. júlí.
  • Loks verður skerðing lífeyrisgreiðslna vegna innlausnar séreignarsparnaðar afnumin frá og með 1. janúar 2009.

Verkefnisstjórn félags- og tryggingamálaráðherra mun áfram vinna að endurskoðun og einföldun almannatryggingakerfisins og hefur henni verið falið að skila ráðherra heildstæðum tillögum þar að lútandi fyrir 1. nóvember 2008.

 
Og ef við miðum við að Framsókn hefur farið með málflokk fatlaðra og öryrkja síðustu þar til í síðustu kosningum þá segi ég bara öryrkjar mega vera fegnir að Jóhanna er með þennan málaflokk núna. Því ef þér finnst ástandið vera slæmt nú eftir allar þær lagfæringar sem hún er búin að gera, hvernig væri það þá ef að framsókn væri enn með málaflokkinn. Hún hafði jú 12 ár til að bæta hann. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.9.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Það að Aðalstjórn  ÖBÍ sjái sig tilknúna að senda frá sér SÉRSTAKA
yfirlýsingu það sem lýst er ÞUNGUM áhyggjum af versnandi fjarhagstöðu
öryrkja, ÞRÁTT fyrir upptalningu þína, sem er góð eins langt sem hún nær,
segir  allt sem segja þarf um hríðversnadi stöðu öryrkja og þeirra sem
verst eru settir í dag. Þetta eru bara blákaldar staðreyndir. Vegna
óðaverðbólgu og stjórnleysi í efnahagsmálum, stórminnkandi kaupmáttar
og alles sem Samfylkingin ber FULLA ábyrgð  á.

Hversu ljótt sem segja má um Framsókn jókst samt kaupmáttur í hennar
stjórnartíð hvorki meir ne minna en hátt í 70% og sem betur fer jóks kaup-
máttur öryrkja og þeirra verr-settu umtalsvert á þeim tíma. En
núna fer hann snar-minnkandi.  Ekki að reyna að verja þetta Magnús!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.9.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband