Ingibjörg og Samfylkingin segi af sér !


   Sem einn af þegnum þessa ágæta lands míns krefst ég þess
að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Samfylkingin
axli pólitíska ábyrgð og  segi af sér. Þetta  lið  hefur setið í ríkis-
stjórn hátt á annað ár, farið með viðskiptamálin og bankamálin
í landinu og bera  FULLA ábyrgð á  fjármálaeftirlitinu, sem  er
undir pólitiskri ábyrgð viðskiptaráðherra. Samfylkingin  ber því
gríðarlega ábyrgð á ástandinu í dag. Tók EKKERT mark á ótal
viðvörunarljósum sem blikkuðu, og sem viðskipta- og banka-
málaráðherrann hafð fremstur manna á Íslandi aðgang að.
Allt  var þetta hunsað og skellt skolllaeyrunum við af hálfu
þessara pólitísku aðila Samfylkingarinnar.

  Þessi krafa er sett fram í ljósi þeirrar gífurlegu HRÆSNI sem
Samfylkingin ástundar í dag. - Þýkist HVERGI hafa komið nærri,
ÖLLUM öðrum sé um að kenna en Samfylkingunni. Í raun gerir
manni flökurt að  horfa upp  á slíka  pólitíska syndarmennsku.
Hinn pólitíkski kattarþvottur Samfylkingarinnar er orðin slíkur,
að honum verður að mótmæla, og það harðlega.

   Þjóðin er ekkert fifl!  Við sjáum í gegnum hræsni Samfylkingar-
innar. Hún ber FULLA ábyrgð á hvernig komið er ekki síður  en
aðrir sem hlut eiga að málum....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas !

Og gleymdu ekki; viðbjóðslegum ferli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, í þessum ósköpum öllum, Guðmundur minn.

Með beztu kveðjum, sem ætíð /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 16:09

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Veit ég vel Óskar. En það er ekki hægt að láta Samfylkinguna komast upp
með það að vera eins og hvít dúfa í þessu öllu. Hvít dúfa sem ætlar sér
svo að nota tækifærið og fljúga með Ísland inn í enn meira helsi, ESB. 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.11.2008 kl. 16:16

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þetta fólk kann ekki að skammast sín!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.11.2008 kl. 16:18

4 identicon

Tek; að sjálfsögðu, undir síðustu orð þín, jafnframt,, Guðmundur Jónas !

Með beztu kveðjum, á ný /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 16:23

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Benedikt. Auðvitað var fjölmargt hagt að  gera t.d hjá bankamálaráðherranum, vitandi þetta fyrir löngu, að hafa ekki slegið
í borðið við Landsbankann starx og gefið honum úrslitakosti að skrá
útibúin í Bretlandi og þar með Icesave reikninganna. Ábyrgð bankamálaráð-
herra er svakaleg eins og kemur fram í viðhengi Gunnars Rognvaldssonar.
Þessi ráðherra ætti tafarlaust að segja af sér...

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.11.2008 kl. 17:36

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Benediklt. Er þeirrar skoðunar að allt klabbið sem ber ábyrgð á allri þessari
stöðu eigi að víkja. Þarf að fara fram allsherjar uppstokkun í þjóðfélaginu öllu og ekki síst í stjórnmálunum. Varðandi mig þá kalla ég á róttækan þjóðlegan og heilsteyptan stjórnmálaflokk til að hreinsa ærlega til, svo að tiltrú þjóðarinnar á íslenzku stjórnarfari byggist upp og trúin erlendis frá
á íslenzkum efnahagsmálum einnig.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.11.2008 kl. 21:16

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég sem borgari í þessu landi krefst þess að Framsókn, Frjálslyndir verði lagiðir niður sem stjórnmálaflokkar. Enda hafa þeir ekkert að gera nema að taka atkvæði frá öðrum og koma í veg fyrir að hér skapist raunverulegur möguleiki á að taka upp almennilegt velferðarsamfélag. Sting upp á að stofnaður verði Evrópuflokkur þeirra innan framsóknar sem hafa séð ljósið sem og hluta Sjáflstæðismanna og saman gangi þau í kosningabandalag við Samfylkingu þar sem aðalmálið verður að sækja um aðild að ESB

evruflokkurinn

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.11.2008 kl. 22:53

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Samfylkingin er nálægt því að dæma sig úr leik sem stjórnmálaflokk sem getur tekið ábyrgð.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.11.2008 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband