Furðuleg yfirlýsing Ingibjargar


   Alveg furðuleg yfirlýsing Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir
utanríkisráðherra  um loftvarnir  Breta á  jólaföstu. Hún
segist ,,leggja  það upp í  hendurnar" á Bretum hvort þeir
koma hingað í desember til þess að sinna loftrýmisgæslu 
eða ekki  - Er það ekki fyrst og fremst ákvörðun íslenzkra 
stjórnvalda að segja til um það hvort Bretar komi hingað
eða ekki ? Er Ísland ekki enn fullvalda og sjálfstæð þjóð
að mati utanríkisráðhera? Og er það mat utanríkisráðherra
að það sé viðeigandi að sú þjóð sem beitir okkur enn hryðju-
verkalögum annist varnir Íslands ? Er orðið, ÞJÓÐARSTOLT,
ekki til í hugarheimi utanríkisráðherra?

   Er að furða að utanríkisráðuneytið með slíkum yfirmanni
hafi meiriháttar klúðrað því að standa vörð um íslenzka
hagsmuni og íslenzkan málstað á undanförnum vikum? 
Valdið málstað Íslands og hagsmunum þess stórtjóni vegna
aðgerðarleysis. - Ætlar svo að flatmaga fyrir ofbeldisþjóð-
inni og biðja hana um að sinna íslenzkum  loftvörnum.  Er
undirlægjuhátturinn engum takmörk sett í utanríkisráðu-
neytinu ???

  Hafi nokkrum tíman verið nauðsyn að hreinsa út í íslenzka
stjórnkerfinu þá er það í utanríkisráðuneytinu.

  Og það STRAX! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá þig loksins tala um Ingibjörgu Sólrúnu. Hélt að þú værir kannski búinn að gleyma henni og Samfylkingunni.

Sakna þess reyndar að þú skulir ekki tala um ESB. Er ekki komið langt síðan að þú hefur eitthvað á það minnst?

Svo er að koma kreppa innan fárra vikna. Þökk sé hinum alsjándi leiðtoga, forstöðumanni þjóðarinnar.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 00:32

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ertu á mála hjá DV nafni ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.11.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ríkisstjórnin er til skammar

Sigurður Þórðarson, 13.11.2008 kl. 00:51

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Benedikt. Vogar þú þér að halda uppi vörnum fyrir Ingibjörgu í þessu máli?
Bretar hafa lýst yfir stríði á okkur með því að beita okkur hryjuverkalaögum.
Álíka og Bandaríkjamenn samþyktu að Al-Kaída sæu um loftvarnir yfir
Now York. Svo átti tæki í tengslum við þetta flug Breta að fara í skip í gær.
Undirlægjuháttur ykkar krata gegn erlendu valdi er algjör, endi tilbúnir að
ganga Brusselvaldinu á hönd, sem einnig reynir að kúga okkur í þessu máli.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.11.2008 kl. 10:16

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Annaðhvort er það svo að innbyrðis ósætti flokka í ríkisstjórn er þess valdandi að menn geta ekki tekið af skarið ellegar viðhorf ríkisstjórnarinnar í heild er það að menn þurfi yfirleitt ekkert að taka afgerandi ákvarðanir heldur berast með straum þess sem verða vill.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.11.2008 kl. 02:06

6 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Leiðinlegt að segja þetta en það lítur út fyrir að það sé byrjað að framleiða nýjar íslenskar dyramottur undir vörumerkinu ISG S/F - co/EU Branch Office. Þetta er átakanlegt.

Gunnar Rögnvaldsson, 14.11.2008 kl. 18:19

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Engar breskar þotur og engin læti kring um það. Frábær stjórnsýsla Ingibjargar

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.11.2008 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband