Máttlaus utanríkisráðherra
14.11.2008 | 22:13
Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu máttlausan
utanríkisráðherra þjóðin hefur átt, síðustu misseri. Einmitt þegar
þjóðin þurfti að sýna styrk og festu. Það er alveg með ólíkindum
hverning utanríkisráðherra hefur skelfilega tekist upp við að gæta
íslenzkra hagsmuna og íslensks málstaðar í átökunum við Breta
að undanförnu. Því tilburðir utanríkisráðuneytisins til að svara
Bretum af fullri hröku eftir þeir beittu íslenzka þjóð hryðjuverka-
lögum voru nánast engir. Því tapaðist hið mikilvæga áróðurstríð
við Breta, og sem fyrst og síðast skrifast á Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttir utanríkisráðherra.
Þá er framkoma utanríkisráðherra í aðkomu Breta að loftvörnum
Íslands átakanleg fyrir þjóðarstolt Íslendinga. Fyrst lýsir utanríkis-
ráðherra því yfir að ÞAÐ SÉ Í HÖNDUM BRETA hvort þeir koma hingað
eða ekki, hafandi enn hryðjuverkalögin yfir íslenzkri þjóð. Það er
sem sagt EKKI á valdi íslenzkra stjórnvalda að ákveða slíkt að mati
utanríkisráðherra. Og nú hafa loftvarnir Breta verið afturkallaðar.
En ekki skv beðni íslenska utanríkisráðuneytisins. Heldur á vett-
vangi NATO. Niðurlægingin er ALGJÖR!
Ef vel ætti að vera ætti Alþingi að lýsa yfir vantrausti á utanríkis-
ráðherra. - Og það tafarlaust! - Ráðherra hefur svo gjörsamlega
svíkist um að standa vörð um íslenzka hagsmuni og málstað..
Hætt við loftrýmisgæslu Breta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Leitt þú skulir vera svona niðurlægður. Það er erfið tilfinning
Urf (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 02:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.