ESB-kúgun í boði Samfylkingar


   Þá hefur Samfylkingunni tekist ætlunarhlutverk sitt. Komst  í
ríkisstjórn á fölskum forsendum og hefur nú komið ráðabruggi
sínu  algjörlega í höfn. Ísland liggur nú hundflatt fyrir ESB og
Brusselvaldinu. Óskadraumur Samfylkingarinnar.  Samfylkingin  
fékkk illu heilli  í hendur helstu þætti banka, verslunar og við-
skiptalífs í upphafi kjörtímabils. Lét bankamálaráðuneytið og
fjármálaeftirlit undir sinni stjórn  gjörsamlega sofa á verðinum
þegar ljóst var að bankahrun blasti við. Í kjölfar þess lét utan-
ríkisráðuneytið það sig svo engu skipta þótt bresk stjórnvöld
settu á Ísland hryðjuverkalög í upphafi bankahrunsins, þvert á
EES-samninginn, með skelfilegum afleiðingum. - Brást síðan AL-
GJÖRLEGA í málsvörn fyrir íslenzkum hagsmunum á aþjóðavett-
vangi vegna þessa. Og niðurstaðan?  ALGJÖR uppgjöf íslenzkra
stjórnvalda. Ganga nú að ofurkostum ESB eftir að hafa klúðrað
málinu frá upphafi.  Og til að fullkomna niðurlæginguna hefur for-
maður Samfylkingarinnar látið hanna aðildarumsókn að  ESB í
utanríkisráðuneytinu. Þessu sama kúgunarklúbbi og sem nú
stefnir í að skuldsetja íslenzka þjóð margar kynslóðir fram í tím-
ann

   Hafi einhvern tíman verið þörf á að þjóðin rísi upp gegn jafn
óþjóðlegum stjórnmálaflokki og Samfylkingunni þá er það nú.
Einnig Sjálfstæðisflokknum fyrir að leiða slík and-þjóðleg öfl
til valda. -  En umfram allt þarf að koma í veg fyrir kúgunar-
áform valdhafanna í Brussel.  Þing og þjóð VERÐA að koma í
veg fyrir slíkan Versalarsamning. Að öðrum kosti verður upp-
reisn þjóðarinnar. Því þetta er miklu verri nauðung heldur en
Þjóðverjar voru neyddir til á sínum tíma.

  Hafi einhvern tíman verið þörf á þjóðhollum og heilsteyptum
stjórnmálaflokki þá er það nú.  ALGJÖR uppstokkun í íslenzku
flokkakerfi þarf að fara fram, ásamt annari hreinsun í öllu
stjórnkerfinu. 


mbl.is Ánægður með samninginn við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Ég á mér draum að minn flokkur Frjálslyndi flokkurinn verði sá flokkur, það mun koma í ljós.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.11.2008 kl. 01:31

2 identicon

Hafi einhverntíma verið þörf á því að láta þetta gagnslausa flokkakerfi róa, þá er það núna. Við þurfum ekki enn einn stjórnmálaflokkinn í ríkisstjórn. Það hefur sýnt sig að um leið og fólk fær vald í hendur þá byrjar það að spillast. Við þurfum samfélag þar sem enginn einstaklingur hefur meira vald en svo að hann ráði við að nota það siðlega og í þágu almennings. Semsagt mjög, mjög lítið vald sem fljótlegt er að kippa af honum aftur. Við þurfum alvöru lýðræði.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband