Litla Framsókn sameinist Samfylkingu


   Afsögn Guðna Ágústssonar sem þingmanns og formanns
Framsóknarflokksins á eftir að valda stórpólitískum atburðum
í íslenzkum stjórnmálum. Mikil átök og uppgjör eru framundan
innan íslenzka flokkakerfisins. Baknahrunið og hin umdeildu
Evrópumál valda því að algjör uppstokkun verður í íslenzkum
stjórnmálum.

   Elsti flokkur þjóðarinnar er nú ein rjúkandi rúst. ESB-trúboðið
sem þar hefur fengið að grassera á umliðnum árum í anda Hall-
dórs Ásgrímssonar hefur náð markmiði sínu. Klofið flokkinn í herð-
ar niður og úthýst endanlega hinum þjóðlegu öflum í flokknum,
öflum sem voru ætíð grasrót hans og merkisberi. ESB-trúboðið á
nú bara eitt eftir. Að ganga endanlega og formlega í sitt móður-
fley, Samfylkinguna. Því þar og hvergi annars staðar á þetta evro-
kratalið heima.

   Ljóst er að með hverjum deginum sem líður er að skapast sterkur
hljómgrunnur fyrir Íslenzkum Þjóðarflokki. Flokki, sem þjóðin getur  
100% treyst fyrir fullveldi sínu og sjálfstæði.

   Áður var þörf. En nú er nauðsyn !

  Áfra Ísland! 
mbl.is Eygló tekur sæti á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Alveg sammála !  Nú er þörf á Þjóðarflokki, þar sem samvinnuhugsjónin og hin þjóðlegu gildi vega þyngst !

Guðni og Bjarni eru sjálfkjörnir til forystu þar:

Skákfélagið Goðinn, 17.11.2008 kl. 22:24

2 identicon

Ég kýs þá.

Anna (IP-tala skráð) 17.11.2008 kl. 23:50

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála þér, Guðmundur Jónas, Samfylkingin hefur allt niðrum sig og kann ekki að skammast sín, og Framsóknarflokkurinn virðist ætla að gera sér það sama að góðu: að gerast handgengnir erlendu valdi, og sama áráttan sækir á suma Sjálfstæðisflokksmenn. Augljósari verður naumast þörfin fyrir nýjan flokk – Þjóðarflokk.

Jón Valur Jensson, 19.11.2008 kl. 00:34

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Innilega sammála Jón Valur..

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 19.11.2008 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband