Alþjóðasamfélagið taki af skarið á Gasa !


   Hinn síoniski Ísraelsher hótar nú stórauknum hernaðarátökum
á Gasa þvert á ályktun Öryggisráðs S.Þ um tafarlaust vopnahlé.
Ísraelsstjórn virðir  enn og aftur allar áskoranir  og  samþykktir
alþjóðasamfélagsins um frið í Mið-austurlöndum að vettugi. Það
gera raunar hin öfgafullu Hamassamtök líka, sem þarf að afvopna
þegar í stað.

   Alþjóðasamfélagið getur hins vegar ekki lengur  horft upp á
stríðsglæpina á Gasa lengur. Saklausir borgrar, einkum börn
konur og gamalmenni er stráfellt eða limlest í hundruðum eða
þúsunda tali. Og enn hóta síonistastjórnin í Ísrael enn meiri
hryllingi.

   Friður kemmst ekki á þegar algjörir villimenn eiga í hlut nema
með valdi. Á Gasasvæðið þarf að senda inn hersveitir á vegum
Sameinuðu þjóðanna og NATO í því markmiði að stilla til friðar,
þannig að stríðsglæpunum verði hætt gagnvart saklausu fólki.
Því heimsbyggðinni er nú algjörlega  misboðið hryllingurinn á
Gasa sem er í raun helvíti á jörð undir núverandi kringumstæð-
um.

   Ísland á að tala fyrir slíku á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
og NATO. Og það strax!  Drápin á saklausu fólki á Gasa VERÐ-
UR að stöðva umsvifalaust!!
mbl.is Ísraelar vara við árásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála hverju orði. Það hefur lengi tíðkast hjá íslenskri valdstjórn að láta skilaboð frá BNA stýra viðbrögðum í þessum efnum. Nú hefur reynt á það sem aldrei fyrr að engu skiptir hverjir þeir dindlar eru sem tryggja Sjáfstæðisflokknum alræði á Íslandi.

Ef ég stæði frammi fyrir því að morðóðir ofsatrúarmenn stæðu á næsta götuhorni reiðubúnir að myrða fjölskyldu mína þá gripi ég til varna. Og það skipti mig nákbæmlega engu þó ég heyrði gegnum sprengjugný og skelfingaróp að einhverjir Íslendingar hefðu áhyggjur af þessu og segðu rétt einu sinni að nú þyrfti líklega eitthvað að gera í málinu.

Árni Gunnarsson, 10.1.2009 kl. 17:45

2 Smámynd: el-Toro

ég verð að efast um viskuna á bak við þá hugmynd að senda inn hersveit til að stilla til friðar.  fyrir það fyrsta mundi sú hersveit bara bætast í hóp þeirra tveggja sem fyrir eru að berjast eins og hundur og köttur.

eina leiðin út úr þessum hörmungum er samningaleiðin.  eina landið sem hugsanlega getur stoppað þessi ósköp er Egyptaland.  egyptar eiga greiðari leið að báðum aðilum heldur en einhver annar.

Árni, "ef morðóðir ofsatrúarmenn stæðu á næsta götuhorni...."  þarna eigast við tveir mismunandi hópar morðóðra ofsatrúarmanna. 

hvað Ísland varðar í þessu tilfelli.  þá skiptir það akkúrat engu máli.  ísland hefur engin áhrif á eitt né neitt úti í heimi.  hvaða máli skiptir þór svo ingibjörg kvarti og kveini einhverstaðar úti í heimi....????  ekki nokkurru máli, að sjálfsögðu.  þess vegna finnst mér alltaf hálf kjánalegt að lesa um þegar fólk er að troða íslandi inn í svona umræðu.  við íslendingar eigum bara að hugsa um kreppuna okkar, þar getum við haft áhrif.

el-Toro, 10.1.2009 kl. 20:28

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svavar. Mér finnst það ómerkilegur tvískinnungsháttur að konan sem fór dagfari og náttfari um heimsbyggðina að tryggja okkur sæti í Öryggisráðinu skuli ekki láta "rödd Íslands" hljóma gegn svona atburðum.

Hvað kreppuna áhrærir-sem er annað mál og óskylt- þá er ég í hópi þeirra sem krefjast þess að þeir sem stýra eiga átökum okkar við hana þiggi frá þjóðinni umboð til þess. Það umboð hafa núverandi stjórnvöld ekki fengið. Þeim var falið umboð í trausti þeirra orða að hér væri búið að tryggja hagsæld í bráð og lengd og þau orð liggja að baki umboði þeirra í dag.

Þetta reyndist blekking byggð á heimsku.

Árni Gunnarsson, 10.1.2009 kl. 21:08

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sævar. Ísland hefur þó ennþá frjálsa og sjálfstæða RÖDD sem það má alveg
byrsta við svona hrylling. Erum a.m.k enn utan ESB, meðan Ingibjörg er
kannski orðin aðili að því og vill því ekkert gera nema í samráði við Brussel.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.1.2009 kl. 21:22

5 Smámynd: el-Toro

Árni, það sem ég á við er að það skiptir engu máli í rauninni, þó svo ísland kvarti og kveini yfir þess lags málum á heimsvísu.  við skulum ekki ofmetast, við búum "bara" á Íslandi.

Guðmundur, gott og vel að ísland hafi frjálsa og sjálfstæða RÖDD.  það kemur samt þessu máli á engan hátt við.

el-Toro, 10.1.2009 kl. 21:50

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jú Sævar. Alveg eins og þú lýsir skoðun þinni hér skiptir máli. Á sama hátt
skiptir máli að Íslendingar lýsi skoðun og afstöðu á alþjóðlegum vettvangi,
burtséð hvort hlustað sé á eða ekki.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.1.2009 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband