Stjórnendur gömlu bankanna svari til saka STRAX !


    Ef satt reynist að stjórnendur gömlu viðskiptabankanna hafi
selt utflutningsatvinnuvegunum og  lífeyrissjóðum gjaldmiðla-
skiptasamninga,  og tekið síðan ,,risastöður" gegn krónunni
hvað eftir annð og skapað þannig þjóðinni allri gríðarlegt
og ómælt efnahagslegt tjón, á umsvifalaust að handtaka
alla þessa menn og ákæra fyrir svik við þjóðina með viðeig-
andi refsingu.

  Þegar svona alvarlegar ásakanir koma fram er það krafa
þjóðarinnar að viðkomandi yfirvöld gangi í málið tafarlaust!

  Eðlileg reiði þjóðarinnar er orðin slík að nú þurfa verkin að
fara að tala.  Ella mun þjóðin rísa upp! Þetta gengur ekki
lengur.!  Stjórendur gömlu bankanna VERÐA nú að svara
til saka OG ÞAÐ STRAX!
mbl.is Rannsókn nauðsynleg vegna galdmiðlaskiptasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það versta við þetta er að það ná engin lög yfir þetta! Þetta hefur víst tíðkast um allann heim. Sbr. að þetta gerðist í Bretlandi fyrir nokkrum árum að einn fjárfestir tók stöðu gegn pundinu og setti pundiði í frjálst fall. Og hagnaðist um óhugnalegar upphæðir.

Síðan er þetta spurning um hvaða bankamenn réðu þessu? Eru þeir ennþá starfandi? Ef svo er að í bankanum séu starfandi menn sem héldu þessum möguleikum að fjárfesturm þá eiga þeir að víkja tafarlaust.

En því miður er þetta sennilega ekki lögbrot.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.1.2009 kl. 15:08

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ef einhver veldur öðrum tjóni, í þessu tilfelli gríðarlegu efnahagslegu tjóni,
jafnvel gagnvart heilli þjóð, hlýtur að vera hægt að láta viðkomandi svara
fyrir það og taka út refsingu í samræmi við það sannist sök. Alla vega láta á
það reyna. Síðan á eftir að koma í ljós hversu réttarkerfið er  virkt eða
spillt við slíka rannsókn og dómsniðurstöðu.  Alla vega eigim við sem þjóð
að krefjast rannsóknar á þessum alvarlegu ásökunum. Og það STRAX!
Því við erum látin bera skuldaklafanna næstu áratugina a.m.k fyrir þessar
misgjörðir stjórenda bankanna. Sem við EIGUM ALLS EKKI að sætta okkur
við!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.1.2009 kl. 15:19

3 identicon

Eftir 17 ára óstjórn kemur það örugglega uppúr kafinu að það ná enginn almenn lög yfir þetta. En það mætti athuga kaflann í stjórnarskránni sem fjallar um landráð.

Höður Már Karlsson (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 17:22

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Bið ykkur að hlýða á viðtal Hjálmars Sveinssonar við Njörð P. Njarðvík á Kvikunni Rás 1 kl. 13 í dag. Þar fór hann svo greinilega yfir það að við búum ekki við lýðræði í dag heldur flokksræði.

Það breytir þessu enginn nema við og sýnilegt er að til þess verðum við að taka lýðræðið í eigin hendur. 

Ríkisstjórn okkar er búin að missa sitt fulltrúavald. Það gerðist þegar þær forsendur sem hún byggði umboð sitt á brustu. Þessir flokkar fengu ekki- og báðu ekki- um umboð til að byggja upp samfélagið á ný eftir að þeirra lýsing á traustri efnahagsstjórn og hagvexti reyndist blekking.

Hörður Már. Það er skoðun Páls Skúlasonar fyrrum Háskólarektors að þarna hafi verið framin landráð. Oft höfum við Íslendingar tekið mark á meiri glópum en honum. En hvað sem beinni vísan í Stjórnarskrá líður þá er ljóst að fáum hugnast alræði stjórnvalda og valdhroki því samfara. 

Árni Gunnarsson, 10.1.2009 kl. 18:05

5 identicon

Ef að banki gerir gjaldeyrisskiptasamning þar sem viðskiptavinurinn tekur stöðu sem reiknar með hækkun krónunnar þá þarf hann beinlínis að finna annan kúnna sem er tilbúinn að taka stöðu sem reiknar með því að krónan falli. Bankinn má nefninlega ekki bera gengisáhættuna.

Lífeyrissjóðirnir eiga að vera með sérfræðinga á sínum snærum og það er óskiljanlegt hvers vegna þeir voru að taka stöður með krónunni þegar vitað var fyrir ári síðan að hún myndi líklega falla verulega á árinu 2008 vegna viðavarandi viðskiptahalla og stórra jöklabréfagjalddaga á haustmánuðum. Það sem sprengdi krónuna var peningamálastefnan og sú staðreynd að allt of margir heimskir menn búa hér á landi sem hafa verið á móti inngöngu í ESB. Það væri nærtækast að hengja þá. Þessi vandræði eru eiginlega þeim að kenna.

dud (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 20:03

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Dud. Þá væri alveg hægt að segja að það ætti að ,,hengja" þá sem komu
okkar í ESS-regluverk ESB með t.d icesave-reikningum og hryðjuverkalögum
með tilheyrandi skuldaklöfum fyrir nætu kynslóðir... Því hefðum við aldrei
álpast inní EES-samninginn heldur bara gerr tvíhliða eðlilegan viðskiptasamning við ESB værum við í góðum málum í dag.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 10.1.2009 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband