Einar Kr ! Á þá ekki að kjósa um kvótakerfið líka?


    Einar  Kr Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur nú tekið
stöðu með ESB-sinnum og vill sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu. Beitir fyrir sig þeirri stórfurðulegu röksemdarfærslu
að málið sé komið í öngstræti. ,, Umræðan hefur verið mikil án
þess að það hafi leitt til endanlegrar niðurstöðu" segir ráð-
herra í Mbl. í dag.

   Gott og vel. En hvað þá með kvótakerfið Einar Kr. Guðfinns-
son? Hefur ekki verið meiriháttar ágreiningur um kvótakerfið
meðal þjóðarinnar s.l áratugi? Er það ekki fyrir lífandis löngu
komið í öngstræti? Hefur ekki umræðan um það verið mikil án
þess að hafa leitt til niðurstöðu? Þarf því ekki  að kjósa um
það líka eins og aðildina að Evrópusambandinu? Hvers konar
rugl er þetta ?

   Útspil sjávarútvegráðherra er óskiljanlegt og algjör fyrir-
sláttur. Einungis til að  þóknast  undanhaldi flokksforystu
Sjálfstæðisflokksins í  Evrópumálum sem  klárlega stefnir á
Brussel-hraðlestina skv. ósk og kröfu formanns Samfylking-
arinnar. Þátttaka sjávarútvegsráðherra í því undanhaldi er
því aumkunarvert..
 
mbl.is Sjávarútvegurinn og ESB til umræðu á málingi Heimssýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Mér finnst þetta ekki rétt hjá þér Guðmundur  Held þvert á móti að ráðherran sé að komast að hárréttri niðurstöðu eins og fleiri í hans flokki

Gylfi Björgvinsson, 11.1.2009 kl. 12:20

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gylfi. Og hver eru rökin fyrir því?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.1.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband