Skýr valkostur fyrir okkur ESB-andstæðinga
11.3.2009 | 15:38
Þau ánægjulegu tíðindi hafa nú gerst að L-listinn hefur nú birt
sinn fyrsta framboðslista í stærsta kjördæmi landsins. Þannig
hafa allir sannir ESB-andstæðingar nú eignast skýran valkost
í komandi alþingiskosningum, því L-listinn mun bjóða fram í öllum
kjördæmum landsins. Efstu sætin skipa sterkir frambjóðendur, og
fer vel á því að Bjarni Harðarson fyrrv. þingmaður leiði listann. En
hann hefur verið einn skelleggjasti baráttumaður fyrir sjálfstæði
og fullveldi Íslands, og er einn fárra stjórnmálamanna sem hefur
sýnt að er tilbúinn til að axla ábyrgð. Einmitt það sem hefur svo
skort á í íslenzkum stjórnmálum að undanförnu.
Hér með er skorað á alla sanna þjóðfrelsis- fullveldis- og sjálf-
stæðissinna að fylkja sér um L-listann í komandi kosningum, og
gera sigur hans sem stærstan. Því ENGU öðru framboði er lengur
treystandi í Evrópumálum en L-listanum. - En einmitt með stórum
og afgerandi sigri L-listans yrði hægt að koma í veg fyrir það skelfi-
lega ráðabrugg and-þjóðlegra afla að koma Íslandi inn í Evrópu-
sambandið. X við L er skýrt NEI við ESB í komandi kosnigum. Eini
valkostur ESB-andstæðinga til að koma skýrum skilaboðum á fram-
færi um að hafna beri öllum hugmyndum um aðild Íslands að Evrópu-
sambandinu, sem innan skamms stendur á brauðfótum.
Áfram Ísland. -
Efstu menn L-lista í Reykjavík-norður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.