ESB-andstæðingar Sjálfstæðisflokks komi til liðs við L-listann !!!


   Það er hverjum deginum ljósara, að Sjálfstæðisflokknum er alls
ekki  lengur  treystandi  í Evrópumálum. Vara-formaður flokksins
hefur ítekað þá skoðun sína  að  flokkurinn  muni gefa grænt ljós
á aðildarviðræður eftir landsfund. Innan þingflokksins eru þegar
ýmsir þingmenn sem vilja aðildarumsókn, einnig fjöldi meðal próf-
kjörsframbjóðenda flokksins. Þá er Bjarni Benediksson sem  mjög
sterkar líkur eru á  að  verði næsti  formaður Sjálfstæðisflokksins
hlynntur aðildarviðræðum. Og svona má lengi telja.

   Sjálfstæðisflokkurinn er því í raun þverklofinn í einu heitasta sjálf-
stæðismáli þjóðarinnar frá  lýðveldisstofnun. Því  hljóta  fjölmargir
ESB-andstæðingar innan Sjálfstæðisflokksins að horfa mjög til hiðs
nýja  framboðs sjálfstæðissinna í Evrópumálum, L-listann. - Ekki síst
þar sem hér um að ræða hófsama borgaralega hreyfingu, sem hafnar
frjálshyggjunni, sem á stóran þátt í efnhagshruninu í dag. Framboð
sem höfðar til hinna gömlu góðu þjóðlegu gilda, þar sem þjóðfrelsið
og fullveldið verði ætíð grundvöllur einstaklingsfrelsis og efnahags-
legra framfara, með fullum yfirráðum yfir auðlindum Íslands. Um annað
verður ALDREI nein sátt. Tilvonandi formaður Sjálfstæðisflokks verður
að átta sig á því að um aðildarviðrður og umsókn að ESB verður ALDREI
nein sátt. Heldur mjög hörð og grimm pólitísk átök.

   Þá hljóta aðrir ESB-andstæðingar annara flokka að horfa til L-listans
í dag, því hann er eina framboðið  sem  hafnar alfarið  ESB-aðild. Má
þar nefna ESB-andstæðinga innan Framsóknar og Frjálslyndra. Þá má
benda á að hagsmunasamtök sjómanna, bænda og útvegsmanna hafna
alfarð aðild að ESB, og eiga því sjónarmið þeirra mikla samleið með við-
horfum og stefnu L-listans.

   L-listinn er í örri mótun og uppbyggingu. Komið sem fyrst til liðs við
hann sjálfstæðissinnar!

    Áfram frjálst og fullvalda Ísland !
mbl.is Vill sátt flokka um næstu skref í ESB málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er andstaðan eina málið sem þessi stjórmálaflokkur ætlar að berjast fyrir

Hver er afstaða flokksins í kvótamálinu svo eitthvað sé nefnt? 

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 00:29

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón. Er fylgjandi því að skoða sjávarútvegsstefnuna frá grunni. Erum með
fjölmörg önnur stefnumál sem verða kynnt á næstu dögum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.3.2009 kl. 00:33

3 identicon

1,6% fylgi er bara vandræðalegt. Í 800 manna könnun eru það ca. 13 manns. Eru það hin miklu þjóðlegu "öfl" sem þú ákallar hér á hverjum degi?

Baldur (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 19:07

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Vill benda á að framboðið er nokkra daga gamalt, hefur kynnt aðeins einn
lista, og hefur fengið skipulagða þöggun í sumum fjölmiðlum. Miðað við þetta er þetta mjög góð byrjun, þegar t.d  Frjálslyndir, búnir að starfa í rúm 10 ár
eru einungis með rúm 2% - Ef við fáum svona vikulega viðbót fram að kosningum væri L-listinn með um 10% fylgi, sem yrði stórglæsilegt, miðað
við mjög skamman tíma og uppbyggingu frá grunni. Spyrjum að leikslokum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.3.2009 kl. 21:27

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gangi ykkur vel, Guðmundur Jónas.

Ég neyti á meðan réttar míns til að kjósa enga EBé-dindla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á morgun.

Ég er sammála þér um þessi 1,6% – þetta er allt í áttina.

Kær kveðja.

Jón Valur Jensson, 13.3.2009 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband