Mun Sjálfstæðisflokkurinn hætta að standa undir nafni ?


    Það er alveg ljóst að ef niðurstaða í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins
ganga eftir, og ef Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir verða kjörin til forystu í flokknum á landsfundi, mun Sjálfstæðis-
flokkurinn ekki standa undir nafni lengur. Hann mun þá taka upp hreina
ESB-stefnu  og hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. En til þess
þarf fyrst að sækja um aðild að ESB áður en að aðildarviðræðum kemur.

   Það er alveg með ólíkindum hvernig sumir stjórnmálamenn geta
kúvent í grundvallarmálum. Og það í stærsta pólitíska hitamáli lýð-
veldisins. Þannig hafa Illugur Gunnnarsson, Gunnlaugur Þór og Bjarni
Benediktsson umsnúist eins og skopparakringa á örfáum mánuðum í
Evrópumálum. Hvernig er hægt að treysta slíkum pólitískum vindhönum
til að að fara með stjórn landsmála og gæta þjóðlegra hagsmuna ?

  Allt bendir því til þess að framboð L-lista fullveldissinna geta átt góðan
möguleika í komandi kosningum, svíki Sjálfstæðisflokkurinn grunnskyldu
sína að standa vörð um sjálfstæði og fullveldi Íslands. - Því er framboð
L-lista fullveldissinna mjög tímabært! 

 


mbl.is Um 2400 hafa kosið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Baldur Lorange

ESB aðild ætti að vera mál málanna í prófkjörum helgarinnar og í kosningunum 25. apríl.

Það er þó rétt að taka fram bæði Þorgerður Katrín og Bjarni Benediktsson hafa ekki breytt um skoðun hvað varðar ESB aðild, eða alla vega lít ég ekki svo á. Bjarni Ben hefur sagt það alltaf þegar hann er spurður að hann telji það ekki þjóna hagsmunum Íslands að sækja um aðild miðað við stöðu mála í dag. Þorgerður Katrín hefur einnig sagt að ekki standi til að afsala neinu fullveldi og þess vegna komi aðild ekki til greina ef varanlegar undanþágur fáist ekki frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB. Þetta er nokkuð skýrt. Við vitum að Illugi og Bjarni eru á sömu skoðun í þessum málum.

Það er því ekki sanngjarn að segja að þeir félagarnir Illugi og Bjarni umsnúist eins og skopparakringla eins og þú heldur fram. Mér finnst í þessu að þau öll þrjú séu einfaldlega að segja að ekki eigi að loka neinum dyrum fyrirfram og þeim sem ábyrgum stjórnmálamönnum beri að leita allra leiða til að koma okkur úr þeim ógöngum sem þjóðin er komin í. Þetta þýðir einnig að ekki er verið að loka neinum dyrum hvað varðar samstarfsmöguleika Sjálfstæðisflokksins eftir næstu kosningar.

Hins vegar er það mín skoðun, og örugglega þín einnig Guðmundur, að miðað við núverandi Evrópusamband og miðað við hvert það stefnir til meiri samruna að þá geti það ekki farið saman að aðhyllast sjálfstæðisstefnuna og að vilja aðild að Evrópusambandinu. Ástæðan er einföld. Sjálfstæði þjóðarinnar minnkar til muna með afsali valda í mikilvægum málaflokkum til sameiginlegrar ákvörðunartöku innan Evrópusambandsins.  

Jón Baldur Lorange, 14.3.2009 kl. 18:06

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón B. Fyrir nokkrum mánuðum HÖFNUÐU bæði Bjarni og Illugi aðild Íslands
að ESB. Í dag vilja þeir SÆKJA UM AÐILD.  ENGINN sækir um það sem
viðkomandi er afhuga eða líst ekki á. Þess vegna hafa þeir félagar snúíst
eins og skopparakringa í þessu  stærsta pólitíska hitamáli lýðveldisins.
Sá sem vill umsókn að ESB er ESB sinni. Svo einfalt er það í mínum huga!"

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 14.3.2009 kl. 19:33

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með hvaða niðurstöðu landsfundur kemst að í þessu efni.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.3.2009 kl. 00:19

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Einarður ertu, Guðmundur, og slærð Jón B. snarlega út af laginu og það með fullgildum rökum.

Kær kveðja.

Jón Valur Jensson, 16.3.2009 kl. 02:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband