Við fullveldissinnar vörum við VG í Evrópumálum !



   ATHYGLISVERT!  Já AFAR ATHYGLISVERT.! Formaður Vinstri grænna
sagði ekki eitt einasta orð um Evrópumálin í setningaræðu sinni á
landsfundi VG sem nú stendur yfir. EKKI EITT EINASTA ORÐ í lang
stærsta pólitíska hitamáli lýðveldisins.  Sem segir hvað? Jú VG eru
tilbúinir að gangast undir Evrópustefnu Samfylkingarinnar til   að
halda núverandi vinstrasamstarfi áfram eftir kosningar. Tilbúnir
að gefa grænt ljós á aðildarviðræður, og þar með umsókn að ESB.
Nákvæmlega eins og Framsókn. Og nákvæmlega það sem búast
má við eftir landsfund Sjálftæðisflokksins.

   Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að L-listi fullveldis-
sinna er eina framboðið í dag sem ESB-andstæðingar geta 100%
treyst.

  Því er hér með skorað á alla ESB-andstæðinga að koma nú til liðs
við L-lista fullveldissinna.
mbl.is Sterk skilaboð frá yngra fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ágúst. Bæði Ögmundur, og MJÖG margir í forystuliði VG hafa opnað á
aðildarviðræður!  Því ef EKKI er allt vinstrasamstarf við Samfylkingu fyrir
bí. þESS vegna STEINÞAGÐI hinn alþjóðasinniaði Steingrímur um Evrópumál
í sinni setningaræðu. Ef þú ert EINLÆGUR ESB-andstæðingur áttu svo
sannarlega samleið með okkur fullveldissinnum!!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.3.2009 kl. 01:03

2 identicon

Vil bara minna Guðmund á að leiðin liggur til Evrópu !

Auðvitað sækjum við um aðild að ESB !

Ekki spurning !

Gamlir afturhaldsseggir , ætla þeir bara að sitja heima ?

Guðmundur og Bjarni Harðarson, reyna þvo hendur sínar af spillingu framsóknaflokksins til margar ára.  

Þið berið höfuð ábyrgð á hvernig komið er fyrir þjóðinni !

JR (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 01:23

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Held þú hafir alveg rétt fyrir þér í þessu eins og svo mörgu öðru á hinu pólítíska sviði, flokkurinn þegir um málið vegna samstarfs í ríkisstjórn.

Það má minna á það í þessu sambandi að gamla Alþýðubandalagið setti ekki kröfu í ríkisstjórn um Ísland úr Nató og herinn burt, við að setjast í ráðherrastóla þá, þótt það hefði nú aldeilis verið ein aðalkrafa flokksins í den.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 21.3.2009 kl. 01:25

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir Guðrún þessa athyglisverðu ábendingu.

JR RAGGEIT!! Já ÞÚ MEIRIHÁTTAR ESB-RAGGEITAKAFBÁTUR komma og krata.
Þetta er í SÍÐASTA SKIPTI sem þú kemur hér inn undir NAFNLEYND RAGGETIN ÞÍN! Næst hendi ég þér hér út og LOKA á þig undir þessu JR
dulefni, en hafði samt vit á því að rekja tölunúmer þitt, þannig ég veit 
NÁKVÆMLEGA  hver kafbáturinn JR er. Já, NÁKVÆMLEGA JR!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.3.2009 kl. 01:37

5 identicon

Mikið lifandi skelfing er tilvera þín svarthvít, Guðmundur Jónas. Auðvitað ræðum við málin við ESB og sækjum um ef svo ber undir. Ef fleiri en færri geta fellt sig við samninginn þá er hann greinilega nógu góður. Ég held þú ættir að treysta dómgreind þjóðar þinnar hafna vondum samningi, ef hann væri uppi á borðinu.

Það að vilja ekki skoða samninginn er eins og að vera fótgangandi, vatnslaus og örmagna í eyðimörk en þora ekki að biðja um far, þegar bíll ekur framhjá.Hann gæti nefnilega verið á leið eitthvert sem manni hugnast ekki.

Annars finnst mér viðkvæði þitt í tilsvörum hér að ofan bera vott um rökfræðilegt gjaldþrot. Það er í besta falli barnalegt að uppnefna lesendur bloggsíðu þinnar komma, krata og jafnvel RAGGEITUR. Þín skoðun er ekki sú eina rétta. Hún er ekki til.

Baldur G. (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 02:13

6 identicon

Ég hef nú aldrei heyrt minnst á þennan L-lista áður og ég hugsa að ég haldi mig bara fjarri honum ef höfundur þessa pistils er í forsvari fyrir hann...

Varðandi málefnið, þá hugsa ég að þetta sé ansi mikil rökvilla að stökkva á þessa ályktun. Ég veit ekki betur en að hann Steingrímur hafi bara ekki sagt neitt einasta orð um það!

En annars hugsa ég nú að það átti sig flestir (réttsýnir?) menn að tillaga að umsókn um aðild að ESB á að fara fara beina leið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

smeppi (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 02:46

7 identicon

P.S.

 "L-listi fullveldis-sinna er eina framboðið í dag sem ESB-andstæðingar geta 100% treyst."

Er ekki Sjálfstæðismannaflokkurinn líka á móti ESB aðild ?

smeppi (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 02:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband