Vinstristjórn brennandi olía á kreppuna !


    Það yrði ömurlegt hlutskipti fyrir hina íslenzku þjóð að fá yfir
sig afturhaldssama vinstristjórn eftir kosningar. Kreppan myndi
þá dýpka mjög og lengjast um mörg ár, með skelfilegum afleð-
ingum fyrir þjóðina. Vinstri grænir, sem eru ekkert annanð   en
öfga- náttúruverndarsinnar, með sósíalisku afturhaldssömu ívafi,
munu koma í veg fyrir, að allar bráðnauðsynlegar og þjóðþrifa
framkvæmdir geti orðið að veruleika.  En þær ásamt því að nýta
okkar orkuauðlindir eru frumforsenda þess að skapa hér hag-
vöxt á ný, raunverulega verðmætasköpun, og þar með ný störf
og auknar þjóðartekjur, sem er grundvöllur þess velferðarkerfis
sem við viljum hafa. - Því peningarnir vaxa alls ekki á trjánum
eins og VG  halda. En  aukinn  skattheimta  er einungis brenn-
andi olía  á kreppuna, sem vinstriflokkar geta ALDREI skilið!

    Þá hefur vantrú Samfylkingarinnar á íslenzka framtíð mjög nei-
kvæð áhrif á alla framtakssemi og tiltrú meðal þjóðarinnar. Brýtur
í raun niður hennar sjálfsmynd, dug og þor. Þegar ,,leiðtoginn"
Jóhanna Sigurðardóttir, telur það svo sitt æðsta markmið í póli-
tíska lífi sínu, að koma þjóðinni undir erlent vald, þar sem þjóðin
geti alls ekki verið sjálfstæð og fullvalda lengur, og verði því að
innlimast í ESB, er ekki nema von að þjóðin fyllist algjöru vonleysi
og neikvæðni um framtíð sína.  Svona vinstrimennsku-kokteill er því
það alversta sem hugsast getur að komi  fyrir þjóðina í dag.

   ÖLL ábyrg og þjóðholl borgaraleg öfl eiga  því að  sameinast  og
berjast gegn hinum vinstrisinnuðu óþjóðlegu kreppuflokkum í kom-
andi kosningum. L-listi fullveldissinna mun ekki láta sitt eftir liggja
í því efni.

   X-L listi fullveldissinna!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas !

Stórslys er það; vitaskuld, að ekki yrði kölluð til, utanþingsstjórn, strax að loknu hruni þjóðlífsins, í haust leið, þá Haarde klíkan var búin að koma öllu um koll, með hjálp fjárglæfra liðs þess, hvert enn gengur laust, vel að merkja.

Með beztu kveðjum; sem fyrr /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 00:36

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Hjartanlega sammála þér Óskar. Átti að mynda hér faglega utanþingsstjórn
fram á haust, og gefa þessu ólánsama þingliði frí!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.4.2009 kl. 00:51

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Guðmundur.

Mér líst ekki á forsjárhyggjuhugmyndir hinar ýmsu sem örlar á um þessar mundir.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.4.2009 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband