Vinsrti grænir svínbeygðir í Icesave


   Enn á ný láta Vinstri grænir Samfylkinguna svínbeygja sig.
Fyrst  í  Evrópumálum. Nú í Icesave-deilunni, þar sem íslenzka
ríkið á að  gangast  í ábyrgð fyrir fjárhæð sem er einsdæmi  í
Íslandssögunni. Ábyrgð, sem það ber ENGA ábyrgð á. En allt
til þess að þóknast  blindri ESB-trúboði  Samfylkingarinnar.
ÖLLU skal fórna til að þóknast valdhöfunum í Brussel. Ekki
bara fiskiauðlindinni. Heldur líka fjárhagsgetu þjóðarinnar
til ótal ára.

   Vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttir er sú AUMASTA ríkis-
stjórn í Íslandssögunni. Flatmagahátturinn er ALGJÖR gagn-
vart erlendu valdi. And-þjóðleg viðhorf og ÓÞJÓÐHOLLUSTA
er með EINDÆMUM. - VINSTRIMENNSKAN  LIFANDI  HOLDI
KLÆDD!!!!!!!!!!!

   Hversu lengi ætlar þjóðin að sitja undir þessari and-þjóðlegri
vinstristjórn krata og komma? - ÖLL þjóðleg öfl verða nú að
sameinast í því að koma vinstristjórninni frá sem ALLRA FYRST.
ÍSLENZKIR ÞJÓÐARHAGSMUNIR KREFJAST ÞESS!
 

  
mbl.is Steingrímur fær fullt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er verið að borg innistæðutryggingar sem við bárum ábyrgð á í Íslenskum bönkum upp á 20 þúsund evrur. Geir Haarde lýsti þessu yfir og um 28 Evrópuríki voru sammála um þessa túlkun. Gaman að vita hvað þú hefðir gert. Ef þetta hefði farið fyrir dómstóla er líklegt að allar eignir, innistæður Landsbankans hefðu verið frystar með lögbanni þar til að málið hefði verð leyst. Kannski eftir nokkur ár. Þetta er ekkert að svín beygja eitt eða neitt þetta er spurning hvort að við mundum sætta okkur við algjörlega lokað land með engin viðskipti við útlöndi í nokkur ár. Hvað hefðum vð tapað á því? Örugglega meira: Minni á að í Landsbanka eru eignir sem bera vexti og auksta í verðmætum á næstu árum. Og þegar þær eru selda þá ganga þær upp höfuðstól lánsins. Og eins þá er skuldin miðuð við gengið í dag. Ef það á næstu 7 árum hækkar t.d. um 30% eins og reiknað er með þá lækkar þessi skuld um 200 til 250 milljaðar króna. Því lánið er í evrum og pundum.

Það eru taldar líku á að aðeins um 5% af þessu láni lendi á okkur, jafnvel ekki neitt.  Það er nú lægri upphæðir en áður hefur verið talað um.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.6.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Í einu orðið sagat. ÞJÓÐARSVÍK!!!!!!!!!!!!!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.6.2009 kl. 20:04

3 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas - já; og blessaður, Magnús Helgi !

Magnús Helgi !

Ég vil ei; kasta til þín gífuryrðum stórum, hvar þú ert kurteis maður, að upplagi, en,...... um leið, og ég vil þakka, hinum  mæta land- og þjóðvini, Guðmundi Jónasi, sem oftar - einörð og fölskvalaus skrif, hlýt ég, að spyrja þig Magnús, hvort ekki sé til, snefill Íslendings taugar, í þér - eftir allt það, sem við höfum gengið í gegnum - og eigum eftir enn, að nokkru ?

Með beztu kveðjum;úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 22:44

4 Smámynd: Sigurbjörn Svavarsson

Magnús.

Fyrir íslenska þjóð er betra að segja "við borgum ekki og takast á við afleiðingarnar, heldur en að setja á komandi kynslóð syndir eiknkafyrirtækis.

Sigurbjörn Svavarsson, 6.6.2009 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband