Jóhann Hauksson ömurlegur í Silfri Egils !


   Jóhann Hauksson blaðamaður á DV var ömurlegur í
Sílfri Egils í dag. Efast hefði mátt um ríkisfang þessa
manns. Undirgefnin og flatmagaháttur hans gagnvart
því erlenda kúgunarvaldi sem íslenzk þjóð þarf að þola
frá hendi ríkjum ESB og AGS um þessar mundir  var
algjör. Fór meiriháttar  í  pirrunar  á  honum  að  ekki
skyldi gengið að ÖLLUM ofurkostunum varðandi icesave
og drápskllýfjunum sem því fylgir, svo hans and-þjóð-
lega vinstristjórn gæti óhikað gengið í faðm ESB. 

   Furðulegt að svona ofstopamaður skuli vera í blaða-
mannastett.  Ennþá furðulegra að blað sem vill taka
sig alvarlega skuli flagga svona blaðamanni.

  ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB! EKKERT ICESAVE NÉ AGS!

  www.zumann.blog.is
  www.fullvalda.is
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Jóhann Hauksson er einn okkar albesti blaðamaður. Hann stóð sig með miklum ágætum í Silfrinu.  En sínum augum lítur hver á Silfrið....

Sævar Helgason, 11.10.2009 kl. 14:50

2 identicon

Mér fannst Jóhann bara fjandi góður í Silfrinu.

Ef þú, Guðmundur, ert ekki sammála honum, ættir þú að gera það með rökum en ekki skítkasti í persónuna.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 16:10

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gott Sævar og Svavar að þið skulið vera hrifnir af undirlægjuhætti Jóhanns
gegn erlendri kúgun. Kannski sömu and-þjóðlegu sósíaldemókratanir og hann!  Svavar. Það er ekki hægt að rokræða við nánast rasista gegn sinni
eigin þjóð!  Málfltningur hanns var það yfirgengilegur að halda mætti að
þarna væri breskur eða hollenzkur fulltrúi að bera fram skoðanir stjórnar
sinnar gegn íslenzku málstað og þjóðarhagsmunum!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2009 kl. 16:24

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara að benda á blogg síðu hann Jóhanns. Hann tekur ekki stöðu með eða á móti ríkisstjórn heldur myndar sér skoðun varðandi hvert mál fyrir sig. En það er rétt hjá Guðmundi að hann telur eins og fleiri að það sé farið að kosta okkur nú og næstu ár mikið að draga það að ganga frá Icesave. En hér er síðan hans Jóhanns http://www.dv.is/blogg/johann-hauksson/

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.10.2009 kl. 16:29

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvaða and-þjóðlegu sósíaldemókratar skrifuð undir minnisblaðið s.l. haust?

Ég er búinn að steingleyma því og það hafa fleiri gert.

Árni Gunnarsson, 11.10.2009 kl. 16:31

6 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Jóhann styður allavega heilshugar hinar AND-ÞJÓÐLEGU áherslur
ykkar sósíaldemókrata um við íslenzka alþýðan, ég og þú, skulum greiða
óreiðuskuldir útrásarmafíósa, sem hvorki hún né ísl. ríkið ber skylda til að
greiða. ALLT til að getað troðið Íslandi inn í ESB-helsið.

Bara minni á Árni að minnisblað er bara minnisblað og ekki skuldbindandi á
nokkur hátt. Tek fram að ég var mjög andvígur ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylingar, enda hvorki sjálfstæðismaður og því síður krati.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2009 kl. 16:52

7 identicon

Guðmundur.

Hefur aldrei hvarlað að þér að þú værir að gera málstað þínum ógagn með ofstæki þínu?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 17:30

8 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Get alveg spurt sama á móti Svavar.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.10.2009 kl. 17:35

9 identicon

Ekki veit ég neitt um blaðamannahæfileika hans.  Hins vegar var hann ótrúlega viljugur að leggja Icesave ofan á okkur.  Lá við ég héldi að hann færi að bjóðast til að borga það einn, svo mikið lá honum á. 

ElleE (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 21:33

10 identicon

Og ekki var nú blaðamaðurinn grunnhyggni og sam-spillingar hrokinn, Björg Eva Erlendsdóttir skárri.  Þar niðurlægði hún Höskuld Þórhallsson og Sigmund D. Gunnlaugsson fyrir ferð þeirra til Noregs sem þeir fóru til að hjálpa þjóðinni.  Höskuldur og Sigmundur gerðu ekkert rangt, heldur voru alveg heiðarlegir og gerðu það sem hin óhæfa stjórn Jöhönnu Sig. hefði átt að gera fyrir löngu og strax og Bretar og Hollendingar fóru að beita okkur kúgunum.   Það er fráleitt að ætla að taka lán frá AGS með Icesave kúgunar-skilmálum Breta og Hollendinga.   Og það er það sem Höskuldur og Sigmundur villja forðast og eiga ekki skilið háð og skammir fyrir.  



ElleE (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband