Er þetta þá ekki alveg eins bresk vinstri-öfgamennska ?


   Alveg merkilegt hvað fjölmiðlum er oft tamt að fjalla
um  HÆGRI-ÖFGAMENN  meðan  VINSTRI-ÖFGAMENN
fyrirfinnast ekki í  þeirra  orðaforða. En  í dag áfrýjaði
breskur dómsdóll að sjálfsögðu, þá ákvörðun breskra
sósóaldemókratiskra stjórnvalda  um að hleypa ekki
leiðtoga hollenska Frelsisflokksins  inn í Bretland í febr.
s.l. Því hér var þingmaður á ferð kosinn í lýðræðislegum
kosningum í Hollandi  og nýtur þar allra mannréttinda
sem slíkur. Átti því fullt ferðafrelsi til Bretlands, án tillits
til stjórnmálaskoðanna, en bæði löndin eru þar að auki
aðilar að ESB.

   Hér var því gróft brot breskra yfirvalda að ræða lituð af
sósíaldemókratiskri  skoðanakúgun. - Sem bendir miklu
fremur til breskrar vinnstrisinnaðar öfgamennsku þar-
lendra stjórnvalda!!  En ekki öfugt eins og fram kemur
gagnvart þessum hollenska þingmanni í þessari furðu-
frétt.

   

   www.zumann.blog.is 

 


mbl.is Banni gegn öfgahægrimanni hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Kolbeinsson

Ég hef nú verið kallaður vinstri tittur..

..En þetta er spurning um tjáningarfrelsi. Ég sé ekki betur en að múslimar fái óáreittir að mótmæla um alla evrópu ef einhver álpast til að teikna skopmynd af Múhammeð. Enda á lýðræðislegt kerfi okkar að tryggja rétt þeirra til mótmæla og koma skoðunum sínum á framfæri. 

Það stóra við tjáningafrelsið að það veitir þér réttinn að koma skoðunum þínum á framfæri þótt ég sé ósammála þér. Ég skal berjast fyrir rétti þínum til að segja hluti sem mér líkar ekki að heyra! 

Ari Kolbeinsson, 13.10.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

En hvað viltu þá segja um þessa augljósu skoðankúgun og ferðafrelsis-
sviftingu sem Bretarnir sýndu þessum hollenska þingmanni Ari ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.10.2009 kl. 20:10

3 Smámynd: Ari Kolbeinsson

nákvæmlega það sem þú sagðir. Það að hefta skoðanaskipti á þann hátt sem bretar gerðu þarna er augljóslega ólýðræðislegt.

En bretarnir hafa nú ekki verið að gera góða hluti hvað lýðræðið varða síðustu árin hvort eð er, þannig að þetta kemur manni lítið á óvart.

Ég meinti það með að múslimar fá frelsi til að mótmæla hér í evrópu bara þannig að allir hinir hafa líka leyfi til að mótmæla. Líka hollenskir þingmenn.

Og fyrst við erum komnir inn á þessa braut þá má nú alveg minnast á þjóðverjana og sjúklega hræðslu þeirra við að mynda skoðanir. Einhver bankamaður tjáir sig og honum er strax líkt við hitler. Kannski eru alvarleg vandamál til staðar í þýskalandi. Þá hjálpar ekki að stinga höfðinu í sandinn og neyða alla til slíks hins sama, heldur þarf að koma til opin umræða. Annars skapast skilyrði sem bjóða upp á að vont fólk notfæri sér þau. 

Ari Kolbeinsson, 13.10.2009 kl. 20:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband