Furðuskrif Björns Bjarnasonar um umhugsunarfrest forseta


   Á fréttavef AMX.is er vitnað í heimasíðu Björns Bjarnasonar
fyrrv. ráðherra, þar sem hann gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson
forseta fyrir að hafa ekki strax samþykkt Icesave-þjóðsvikin.
Þessi skrif  og  afstaða Björns eru  algjörlega óskiljanleg og
gjörsamlega út í hött.  - Að bera saman fjölmiðlafrumvarpið,
sem grundvallaðist á eignarhaldi og rekstri fjölmiðla annars
vegar,  og  Icesave- skuldadrápsklýfjum  ÚTRÁSARMAFÍUÓSA
annars vegar, sem ætlast er  til að  þjóðin  beri  án dóms og
laga og henni að ósekju, er FÁRÁNLEGT! Hvað skyldi liggja að
baki þessum furðuskrifum Björns Bjarnasonar?  Hvað liggur
hér eiginlega að baki?

   Auðvitað á forseti Íslands að taka þann umhugsunarfrest
sem hann þarf, áður en hann hafnar hinum  illræmda og þjóð-
sviksamlega kúgunarsamningi um Icesave. Það er hans skylda
við land og þjóð Björn Bjarnason!

   ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN. EKKERT ICESAVE né AGS!

   www.fullvalda.is
   www.frjalstisland.is
  
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Guðmundur,

gleðilegt ár! Hvernig væri að lesa, áður en ályktað er? Hvar hef ég sagt, að ÓRG eigi að staðfesta Icesave-afarkostina? Ég hef sagt, að hann hafi enga heimild til að taka sér umhugsunarfrest. Hann á annað hvort að staðfesta eða synja það, sem fyrir hann er lagt, þegar lög eru lögð fyrir hann. en ekki eftir dúk og disk. Hvet þig til að hafa það, sem sannara reynist.

 Með góðri kveðju

Björn Bjarnason

Björn Bjarnason (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 14:57

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Ólafur Ragnar á að taka sinn tíma sem hann þarf. Þetta er eitt af stærstu
pólitísku hitamálum lýðveldisins. Hvort sem hann neitar undirskrift eða ekki
mun það valda miklum pólitískum deilum. Þessar pólitísku hatrömmu deilur
hafa verið um Icesave frá upphafi, og verða ÆTÍÐ meðan þjóðin hefur þessa drápsklyfjar yfir höfði sér. Þannig að það skiptir ekki nokkru máli
hversu lengi  Ólafur hugsar málið. Málið verður ætið pólitískt hitamál fyrir forsetan og þjóðina. Númer eitt er að hann HAFNI þessum þjóðsvikum. Allt annað er að gera úlfvalda úr mýflugu.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2010 kl. 16:16

3 identicon

Sæll aftur Guðmundur,

eins og þú veist er ég andvígur Icesave-lögunum. Ég er hins vegar einnig andvígur því, að Ólafur Ragnar Grímsson fari ekki að stjórnlögum. Eitt fordæmi er fyrir því, að forseti Íslands hafi tekið sér umhugsunarfrest. Það var í tíð Vigdísar Finnbogadóttur og þá fór starfandi forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, á hennar fund og lagði að henni að skrifa undir, sem hún gerði. Nötraði stjórnkerfið vegna þessa. Nú láta geðlausir ráðherrar eins og ekkert sé athugavert við, að Ólafur Ragnar hefji umræður um Icesave-málið á Bessastöðum, eftir að alþingi hefur komist að niðurstöðu sinni. Að sjálfsögðu þarf Ólafur Ragnar engan umhugsunarfrest. Þetta er allt leikaraskapur, sama hver niðurstaða hans verður. Er stórundarlegt, að þú leggir blessun þína yfir þessar kúnstir. Er þér virkilega sama, þótt vegið sé á þennan hátt að stjórnskipun landsins? Telur þú í raun, að með viðvörunum í þessa veru sé verið að gera úlfalda úr mýflugu?

Með góðri kveðju

Björn Bjarnason

Björn Bjarnason (IP-tala skráð) 3.1.2010 kl. 17:16

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sæll Björn. Var ekki viss um að þetta værir í raun þú með ip.tölvu, því eins
og þú veist eru margir hér undir fölskum nöfnum.

Ætla fyrst að óska þér gleðilegs árs og friðar, og þakka þér fyrir góð
störf í þágu lands og þjóðar, enda oftar en ekki verið sammála þér hvað
þjóðmálin varðar. Skal viðurkenna að hafa verið óþarflega harðorður í þinn
garð hér í pistli mínum, enda kannski skrifaður í hita leiks. Get tekið undir
allt sem þú segir varðandi það að forseti beri nær undantekningarlaust að
skrifa undir lög strax sem Alþingi samþykkir. Hins vegar er eins og þú sjálfur veist  þetta Iccesave mál allsherjar klúður og ekki síst eftir að
vinstristjórnin tók við því. Eitt stærsta umdeildasta mál sem komið hefur
fyrir Alþingi, enda lífsafkoma þjóðarinnar í veði. Í því ljósi og því eina ljósi finnst mér það í lagi að forseti taki sér umhugsunarfrest, þótt ekki væri
nema til að senda hinni afdönkuðu vinstristjórn þau skilaboð að málið sé ekki eins sjálfsagt og hún heldur. Gleymum því ekki að forseti gerði fyrirvara við sjálfa fyrirvaranna í águst, sem var einsdæmi. Fær nú frumvarpið aftur sent til sín með GJÖRBREYTTUM FYRIRVÖRUM. Einhver
gæti sagt að þarna sé verið að hafa forsetan að fífli, og það sjálft Alþingi!
Ekki er það í anda stjórnskipunarlaga, eða hvað? 
forseti gefi sér smá umhugsunarfrest 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2010 kl. 17:49

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Síðasta línan ,,forseti gefi sér smá umhugsunarfrest" átti að fara út.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.1.2010 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband