Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010
Furðuskrif Björns Bjarnasonar um umhugsunarfrest forseta
3.1.2010 | 13:25
Á fréttavef AMX.is er vitnað í heimasíðu Björns Bjarnasonar
fyrrv. ráðherra, þar sem hann gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson
forseta fyrir að hafa ekki strax samþykkt Icesave-þjóðsvikin.
Þessi skrif og afstaða Björns eru algjörlega óskiljanleg og
gjörsamlega út í hött. - Að bera saman fjölmiðlafrumvarpið,
sem grundvallaðist á eignarhaldi og rekstri fjölmiðla annars
vegar, og Icesave- skuldadrápsklýfjum ÚTRÁSARMAFÍUÓSA
annars vegar, sem ætlast er til að þjóðin beri án dóms og
laga og henni að ósekju, er FÁRÁNLEGT! Hvað skyldi liggja að
baki þessum furðuskrifum Björns Bjarnasonar? Hvað liggur
hér eiginlega að baki?
Auðvitað á forseti Íslands að taka þann umhugsunarfrest
sem hann þarf, áður en hann hafnar hinum illræmda og þjóð-
sviksamlega kúgunarsamningi um Icesave. Það er hans skylda
við land og þjóð Björn Bjarnason!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN. EKKERT ICESAVE né AGS!
www.fullvalda.is
www.frjalstisland.is
Forhertasti kommúnistinn farinn á taugum
3.1.2010 | 00:30
Svo virðist að forhertasti kommúnistinn á Alþingi í dag sé farinn
á taugum. Vara-formaður fjárlaganefndar, Björn Valur Gíslason,
nánast froðufellir af bræði vegna þess umhugsunarfrests sem
forseti hefur tekið sér vegna Icesave. En það var einmitt þessi
forherti kommúnisti sem vildi svo mikla flýtimeðferð á Icesave í
sumar, að það var algjört aukaatriði að þingheimur vissi nokkuð
um innihald samningsins. Og því síður þjóðin. Allir fyrirvarar voru
meiriháttar óþarfir að mati þessa forherta kommúnista. Enda hvað
varðar forhertum kommúnistum um þjóðarhag loks komnir í hina
innstu kommúnísku Svavars-sellu?
Það var magnaður ÞJÓÐARSAMSTÖÐUFUNDUR á Bessastöðum
í gærmorgun, og mikilfenglegt að vera þátttakandi í honum. Söng-
urinn, neyðarblysin rauð og skær, og í himinblámanum skein hin
blessuð nýárssól, boðandi nýa Íslandsvon, fyrir land vort og þjóð. -
Eitthvað sem forhertir kommúnistar og þjóðsvikarar skilja alls ekki.
Forseti á að taka þann tíma sem þarf að komast að niðurstöðu.
Því hvorki meir né minna er heill íslenzkrar þjóðar og framtíðar-
tilvera er í húfi. Forsetinn hefur nú einstakt tækifæri til að nálgast
þjóð sýna á ný, endurheimta traust hennar og virðingu, með því
að fara að ÞJÓÐARVILJA HENNAR, og láta hana sjálfa ráða örlögum
sínum í hinu stórbrotna og afdrífaríka Icesave-mali. Nóg er hyldýpið
samt milli þings, ríkisstjórnar og þjóðar, að eimbætti forseta bætist
þar ekki við. - Þá yrði þjóðarfriður endanlega rofin, með skelfilegum
afleiðingum.
FORSETI! LÁT ÞJÓÐARVILJANN RÁÐA Í ICESAVE!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
Segir forsetann taka undarlegan pól í hæðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson forseti fær nú sitt síðasta
tækifæri að sættast við þjóð sína. En á tímum útrásarvíkinga og
bankahruns í kjölfar þeirra hefur djúp gjá myndast milli forseta
og þjóðar. En nú hefur forseti einstakt tækifæri á að sættast við
þjóðina. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er andvígur Icesave-
þjóðsvikasamningunum. - Og yfir helmingi fleiri hafa nú skrifað
undir árskorun til forseta um að hafna Icesave en þeir sem
sendu til hans áskorun árið 2004 um að hafna fjölmiðlafrumvarp-
inu. Í ljósi þessa og það hversu miklu stærra og afdrifaríkara
Icesave er fyrir framtíðartilveru Íslendinga en fjölmiðlafrumvarp-
var, hlýtur forseti að hafna Icesave-þjóðsvikunum.
Hafni hins vegar forseti beiðni tugþúsunda kjósenda um að
Icesave fari til þjóðaratkvæðagreiðslu, mun HYLDÝPI myndast
milli forseta og þjóðar, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Því
HYLDÝPIÐ er þegar fyrir hendi milli ríkisstjórnar og þjóðar.
Sem er grafalvarlegt!
Hvet sem flesta til að mæta á Bessastaði fyrir hádegi í dag!
ÁFRAM ÍSLAND! EKKI ESB né SCHENGEN! EKKERT ICESAVE né AGS!
www.fullveldi.is
www.frjalstisland.is
Áskorun afhent í fyrramálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þekkir forsætisráðherra ekki Lissabonsáttmálann ?
1.1.2010 | 14:05
Í áramótaræðu forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttir, hvatti
hún til að sameign þjóðarinnar á helstu auðlindum, vatni og fiski,
verði tryggð í stjórnarskrá. Þetta segir sú manneskja sem á sama
tíma berst fyrir því að Ísland gangi í Stórríkjabandalag Evrópu,
ESB. En þar víkja ALLAR stjórnarskrár aðildarríkja fyrir hinni
YFIRÞJÓÐLEGRI stjórnarskrá ESB, sem grundvallast á hinum
nýsamþykkta Lissabonsáttmála. Þannig að ef Ísland gengur í
ESB, víkur íslenzk stjórnarskrá fyrir stjórnarskrá sambandsins.
Ekki síst í auðlindamálum, en framtíðaráform ESB er að hafa
yfirstjórn auðlinda sambandsins undir sinni könnu.
Forsætisráðherra var því í áramótaávarpi sínu annað hvort
að blekkja þjóðina eða opinbera vankunnáttu sína á sjálfum
grunnstoðum ESB, Lissabonsáttmálanum. Sem hvort tveggja
er mjög alvarlegt mál!
ÁFRAM ÍSLAND. EKKI ESB né SCHENGEN. EKKERT ICESAVE né AGS!
www.fullvalda.is
www.frjalstisland.is
Krefjumst ábyrgra fyrirtækja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |