Frelsisflokkurinn í góðum málum.

Frelsisflokkurinn fyrir viku með 
fullmótaðan framboðslista og meðmæl-
endur til borgarstjórnar. Kynntur við
Ráðhúsið við mikla athygli. Enda eini
trúverðugi þjóðlegi flokkurinn   á 
Íslandi í dag!


Frelsisflokkurinn nýr vettvangur þjóðlegra afla.


   Frelsisflokkurinn er stofnaður var í júní s.l,
en tókst ekki að bjóða fram í þingkosningum 28 okt
s.l sökum tímaskorts, mun verða þátttakandi í öllum
kosningum héðan í frá. Bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor verða fyrsta krefjandi verkefni
flokksins, og er stuðningsfólk flokksins víða um
land hvatt til bjóða fram í nafni hans og hafa
samband við formann flokksins Gunnlaug Ingvason í
síma 8280088 - 

   Frelsisflokkurinn hefur mótað sér skýra grunn-
stefnu til helstu þjóðmála sjá heimasíðu flokksis
www.frelsisflokkur.is ásamt fleiri upplýsingum  um
flokkinn. Á mikilum pólitískum óvissutímum eins og
nú á Íslandi, þegar vinstriöfl og fjölmenningar-
marxismi grassera sem aldrei fyrr, hefur þörfin á
þjóðlegu borgaralegu afli aldrei verið eins sterk og 
nú. Ekki síst þegar helsti málsvari slíkra viðhorfa
gegnum áratugina, Sjálfstæðisflokkurinn, hefur valið
uppgjafarleiðina gegn vinstriöflunum, og stefnir nú
að leiða róttæka sósíalista til öndvegis og forystu
í íslenskum stjórnmálum.  

   Í Evrópu fer nú um álfuna öflug pólitísk þjóð-
hyggja og þjóðfrelsisást  á grundvelli þjóðríkjahug-
sjónarinnar sem er ein af grunnstefnu Frelsisflokk-
sins. Slíkir flokkar vinna nú hvern sigurinn af öðrum
í Evrópu og víðar, enda íslam einn mesti ógnvaldur 
vestrænnar menningar í dag, auk hins rétttrúnaðar-
sinnaða flölmenningarmarxisma. 

  Allt þjóðhyggjufólk sem er annt um land sitt  og 
þjóð er því hvatt til að koma til liðs við Frelsis-
flokkinn, nú þegar baráttan um Ísland stendur sem 
hæst.


Frelsisflokkurinn framtíðarvettvangur þjóðlegra viðhorfa

 Því miður getur Frelsisflokkurinn ekki boðið fram
í komandi þingkosningum. Til þess var tíminn alltof
knappur, og flokkurinn til þess að gera nýstofnaður.
Enda kom hann heiðarleg fram og tilkynnti það strax 
í aðdragandi kosninga. 

   Nú þegar framboð Íslensku Þjóðfylkingarinnar hefur
tvívegis misheppnast, og nú síðast með mjög saknæmum 
hætti, er ljóst að framtíð hennar í íslenskum stjórn-
málum er lokið. Stórskertur trúverðugleiki hennar
hefur einfaldlega gert það að verkum. Samhliða því
hefur staða hins nýja  Frelsisflokks styrkst sem eini
pólitíski framtíðarvettvangur þjóðlegra viðhorfa, já 
allra þeirra sem una landi okkar  og þjóð sem mest! 

  Allir þjóðhollir Íslendingar eru því hvattir til 
að koma nú til liðs við Frelsisflokkinn. Uppbygging
hans er rétt að byrja. En helsta áskorunin er  nú 
komandi borgar- og sveitarstjórnarkosningar í vor.

  Stórsókn þjóðhyggjuaflanna í Evrópu er okkur mikil
hvatning. Síðast sigur Frelsisflokksins í Austurríki
og þar áður AFD í Þýskalandi. Hinn pólitíski rétttrún-
aður og uppgangur vinstriöfgaflokka á Íslandi sýnir
að mikil þörf er á Frelsisflokknum í íslensk stjórn-
mál í dag.  

   Heimasíða Frelsisflokksins er www.frelsisflokkur.is
Þar er hægt að nálgast stefnumál hans og fleira!


Schengen-ruglið afhjúpað á Spani


   Hryðjuverkið á Spáni afhjúpar enn og aftur
Schengen-ruglið!

  Ótatakmarkað flæði svokallaðra hælisleitenda
yfir Miðjarðarhafið t.d til Spánar veldur m.a
því að Spönsk stjórnvöld hafa enga yfirsýn  yfir 
málið. Vissu ekkert um hryðjuverkahópinn. Og
sem verra er, vegna galopinna Schengen-landa-
mæra Spánar  hafa þau ekki hugmynd um hvort
bílstjórinn er framdi ódæðið er innan eða utan landamæra ríkisins!

  Hjákátlegast er þó að eyja úti á hinu miðju
Atlantshafi kýs að deila þessum sömu galopnu
og hripleku landamærum ESB-ríkja á meginlandi
Evrópu með sínum náttúrulegu sterku landamærum.
Þegar ESB-eyþjóðirnar Bretar og Írar taka það
ekki í mál.

  Já aulaháttur íslenskra stjórnmála er óskiljan-
legur!  

  Þess vegna er  Frelsisflokkurinn tilkominn sem
vill m.a segja Schengen-ruglinu upp tafarlaust!


  www.frelsisflokkur.is 


mbl.is Er ökumaðurinn enn á Spáni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsisflokkurinn gegn íslamsvæðingu og mosku!

      
   Í ljósi látlausra hryðjuverka íslamista í
Evrópu og raunverulegrar ógnar sem Íslendingum 
stafar af henni, er vert að minna á þá stefnu
Frelsisflokksins, að lýsa ,,fullri andstöðu
við íslamsvæðingu Evrópu og hafnar moskubygg-
ingu á Íslandi".

  Þá má minna á stefnu flokksins um að ,,hafna
alfarið aðild Íslands að ESB, Schengen," og
vill ,, stórhert landamæraeftirlit og afnámi
núgildandi útlendingalaga og herta innflyt-
jendalöggjöf." Þá styður flokkurinn ,,stór-
herta löggæslu, landhelgis- og tollgæslu og
aukna þátttöku Íslendinga í vörnum landsins".

  Af þessu má sjá að enginn stjórnmálaflokkur
á Íslandi lætur sig eins mikið varða þjóðar-
öryggismál Íslendinga og Frelsisflokkurinn!

 Sjá www.frelsisflokur.is


mbl.is Nafngreina leiðtoga hópsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsisflokkurinn í sveitarstjórnarframboð


  Þann 15 ágúst var  kynntur hér á blogginu 
stofnun Frelsisflokksins en stofnfundur hans
var 1 júní s.l. Eftir að fréttir af honum 
tókust að berast einkum gegnum nýstofnaða 
heimasíðu hans www.frelsisflokkur.is hafa
fjölmargir sett sig í samband við flokkinn
og gengið til liðs við hann.

   Ljóst er að stærsta áskorun hans á næstu
misserum og mánuðum verður að taka þátt  í
komandi sveitarstjórnarkosningum að vori.
Ekki síst í borgarstjórnarkosningunum þar
sem vinstrimenn hafa haft Reykjavíkurborg í
pólitískri gíslinga á þriðja áratug.  Með
hörmulegu stjórnleysi, ótrúlegri skuldasöfnun
og meiriháttar skipulagsslysum svo að minnir
helst á hina kommúnísku Austur-Berlín á síðustu
öld. Sjálfstæðisflokknum hefur ekki tekist að
hrekja vinstrimeirihlutann frá völdum, enda
ótrúlega meðvirkur vinstriöflunum og beinlínis
handbendi þeirra. Og ekkert bendir til að breyt-
ing verði þar á.

   Frelsisflokkurinn mun fókusu á stærstu bæjar-
og sveitarfélögin, og hvetur sem flesta að koma
til liðs við flokkinn á sveitarstjórnarstíginu.
Alveg Sérstaklega í Reykjavík, en þar er svo 
sannarlega verk að vinna á vinda ofan af bákninu
og stjórnleysinu þar, og stokka allt stjórnkerfið
upp á nýtt í þágu borgaranna, þ.á.m aldraða  og
öryrkja. Og í ljósi hinna miklu íslamsku  hryðju-
verka í Evróðu síðustu misseri, er vert að minna
á grunnstefnu flokksins ,,um fulla andstöðu við
íslamsvæðingu Evrópu og hafnar moskubyggingu á
Íslandi".

  Já Frelsisflokkur fyrir land og þjóð!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband