Kristileg siðgæði úr skólum?

 

   Gott hjá Guðna  Ágústssyni  formanni Framsóknarflokksins
á Alþingi í dag að  hefja máls á  ráðabruggi menntamálaráð-
herra að fella  út  úr grunnskólalögum um að skólastarf mót-
íst af KRISTILEGU SIÐGÆÐI. Sagði Guðni ,,að nú skal kennslu-
borðum kristninnar velt og hún gerð brottræk úr helgidómi
íslenzkra menntastofnana að undirlægi menntamálaráð-
herra og ríkisstjórnarmeirihlutans".

   Hvað gengur menntamálaráðherra eiginlega til? Hefur ráð-
herra stuðning þingmanna Sjálfstæðisflokksins við sig í þessu
máli? Hvað með grunnstefnu Sjálfstæðisflokksins að standa
vörð um þjóðleg og kristileg gildi? Miklu frekar hefði maður
haldið að svona ráðabrugg kæmi úr Samfylkingu eða öðrum
vinstrisinnuðum flokkum, en alls ekki Sjálfstæðisflokki.  Það
var því líka rétt hjá Guðna að spyrja ,,hvort Guð eigi að fara
úr þjóðsögnum líka?".

   Á hvaða vegi er Sjálfstæðisflokkurinn staddur ef hann heldur
svona áfram? Krisin trú er samöfin íslenzkri þjóðmenningu í
rúm 1000 ár. Ef ekki á að standa vörð um hana í grunnskólum
landsins, hvað þá með þjóðararfinn í heild sinni?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Þú mátt ekki gelyma því að Þorgerður er í raun þvinguð til þessara breytinga vegna dómsins sem féll vegna sambærilegra mála í Noregi.

Púkinn er sjálfur trúlaus með öllu og myndi helst vilja sjá allt sem tengist kristinfræði hrakið úr skólunum, en það er nú ekki raunin - því miður.

Púkinn, 12.12.2007 kl. 17:13

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Að hvaða leyti er munur á "kristilegu siðgæði" og almennu góðu siðgæði?

Haukur Nikulásson, 12.12.2007 kl. 17:23

3 identicon

Málið er dautt.. það verður ekki trúboð eða þjóðkirkja í skólum og nota bene, Guðni er eins og fornmaður með forneskjulegar hugmyndir um mannréttindi
Þjóðararfurinn hefur ekkert með kristni að gera, hann hefur ekki skilað miklu svo ég geti séð og þá allra síst inn í framsókn

DoctorE (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 17:24

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Skil afstöðu þeirra sem eru ekki kristnir að þeir styðji þetta undarlega ráðabrugg menntamálaráðherra. En þar sem langt yfir
90% þjóðarinnar er kristin þá skil ég alls ekki menntamálaráðherra
í þessu máli. Hvað næst. Þjóðsöngurinn? Þjóðfáninn? Skjaldarmerkið?  Afnám jóla, páska og hvítasunnu sem helgidaga?
Hvers konar rugl er þetta eiginlega? Bara til að þóknast ÖRFÁUM
sérvitringum! 

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2007 kl. 17:39

5 identicon

Guðmundur, málið er einfalt; trú er einkamál hvers og eins, að hafa trúboð í skólum er alls ekki spurning um vinsældir, ef svo væri þá værum við eflaust enn að iðka fornaldar ómanneskjulegar aðferðir í hinum ýmsu málum.
Í Noregi var dæmt í þessu fyrir mannréttindadómstól, óþarfi að endurtaka það hér

DoctorE (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 17:44

6 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

En þar sem langt yfir 90% þjóðarinnar er kristin
Æi, hve oft á að endurtaka þessa dellu?  Þetta er rangt. 

Matthías Ásgeirsson, 12.12.2007 kl. 19:42

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Dictor. Málið er afar einfalt. Íslenzkt samfélag er KRISTIÐ samfélag og hefur verið það í 1000 ár. Kristin trú er SAMOFINN íslenskri
þjóðmenningu. Þess vegna á að standa vörð um hana hér eftir sem
hingað til eins og með öll önnur þjóðleg gildi og viðhorf. Svo ofur einfalt er það nú.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.12.2007 kl. 20:17

8 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

" Íslenzkt samfélag er KRISTIÐ samfélag og hefur verið það í 1000 ár"

Í raun er þetta merkingarlaust kjaftæði.  Hið "kristna samfélag" sem hér var fyrir 200 árum á ekkert sameiginlegt með því "kristna samfélagi" sem er hér nú.  Þetta er bara frasi sem er í tísku að nota þegar menn reyna að verja vondan málstað.

Íslenskt samfélag er ekki kristið, það er veraldlegt.  Íslenskir einstaklingar eru margir kristnir, það er bara allt annað mál.  Samfélög eru ekki kristnir heldur einstaklingarnir í þeim.

Hér ríkti ekkert trúfrelsi lengi vel og kirkjan var gríðarlega valdamikil.  Saga kristninnar á Íslandi er ekkert sérstaklega fögur þegar málið er skoðað betur. 

Matthías Ásgeirsson, 12.12.2007 kl. 22:21

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Matthías minn. Bara sáttur við  það að vera GJÖRSAMLEGA óssamála
þér í þessu máli í GRUNDVALLARATRIÐUM!  Þjóð. Ríki. Kirkja.!¨!!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.12.2007 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband