Vill Ísland úr Schengen


  Einn mesti áfellisdómur um Schengen-ruglið kom fram í fréttum
RÚV í kvöld. Framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, Jón Ásbergsson,
segir Schengen verulega viðskiptahindrun, því það geti tekið
langan tíma fyrir kaupsýslumenn utan Schengen svæðisins að
fá vegabréfsáritanir til Íslands. Hann segir að best væri að Ís-
land segi sig úr Schengen, enda með engin áföst landamæri að
löndum Schengen. Ísland sé eyland eins og Bretland og Írland,
en hvorugt þeirra væri í Shengen.

  Þetta er hárrétt afstaða formanns Útflutningsráðs. Aðildin að
Schengen er eitt mesta ruglið í utanríkismálum í seinni tíð. Enda
kostnaðurinn mikill og gallarnir mun fleiri en kostirnir.

  Hversu lengi enn á þjóðin að horfa upp á þetta rugl ?

    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Var það ekki Halldór, sem var forvígismaður að koma okkur í þetta fen? Ég þakka almættinu fyrir að hann skuli nú vera formaður ráðherra nefndar Norðurlandanna.

Sigurður Þórðarson, 5.8.2008 kl. 20:52

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Það er hárrétt hjá þér Sigurður að hugmyndin var Halldórs. Það breytir engu
um það hversu arfa-vitlaus hugmyndin var og er. Ein af ESB-vírusum Halldórs, sem því miður sjálfstæðismenn samþykktu utan Einars Odds og
Einars Guðfinns. Því miður samþykktu framsóknarmenn vitleysinu og að
sjálfsögðu Samfylkingin, enda einn áfangi þeirra inn í ESB-,,sæluna".

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 5.8.2008 kl. 21:03

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Það er rétt hjá þér Guðmundur Íslendingar áttu aldrei að ganga í Schengen og við eigum að ganga úr því eins fljótt og auðið er.Við áttum að taka sömu afstöðu og Írar og Bretar að hafna inngöngu.

Þessi innganga kostaði okkur miljarða króna vegna breytingar á flugstöðinni og aukin starfsmannafjölda.Ég þekki vel til þessa mála´þegar undirbúningur að Schengen var í gangi var ég deildarstj.tollgæslu, öryggis - og vegabréfaeftirlits í flugstöðinni.Eftir að hafa kynnt mér ýtarlega málavexti fyrir inngöngu í Schengen var ég þess fullviss að aðild okkar væri röng ákvörðunartaka.Halldór Ásgrímsson beitti sér mjög eindregið í þessu máli og meirihluti alþingismanna samþykktu þessa aðild án þessa að kynna sér hana nægjanlega vel.

Allir sem störfuðu í flugstöðinni við tollgæslu og vegabréftirlit voru mótfallnir breytingunni.Hún myndi m.a. veikja eftirlit okkar með afbrotamönnum og fíkniefnaeftirlit.Það var líka vitað að Shengen aðildin myndi verða veruleg viðskiptahindrun fyrir ríki utan Shengen svæðissins eins og framkvæmdastj. Útflutningsráð hefur staðfest.

Kristján Pétursson, 5.8.2008 kl. 21:40

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Allt saman hundrað prósent rétt Guðmundur, algjörlega sammála.

Það var nákvæmlega ekki neitt sem mælti með þáttöku okkar Íslendinga í þessu samstarfi , ekkert.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.8.2008 kl. 01:50

5 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Takk fyrir innleggin hér !

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 7.8.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband