Fullveldissinnar besti kostur ESB-andstæðinga !



   Eftir hin stórpólitísku mistök Bjarna Benediktssonar sem býður
sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins, að lýsa því yfir í gær í
Fréttablaðinu að ESB-aðild og evra séu bestu  kosnirnir fyrir hina 
íslenzka þjóð, hljóta allir SANNIR ESB-andstæðingar innan Sjálf-
stæðisflokks og víðar að sjá, að L-listi fullveldissinna er EINI raun-
hæfi valkosturinn í komandi kosningum. Bjarni Ben hefur  nú kast-
að stríðshanskanum framan í andlit grasrótar Sjálfstæðisflokksins.
En yfir 70% hennar HAFNAR ESB-aðild.  Þrátt fyrir það HRÓPAR
varaformannsefnið ESB ESB og EVRA! Meiriháttar pólitísk afglöp
er varla hægt að fremja en þetta hjá manni  sem hyggst bjóða
sig fram í  mjög AND-ESB grasrótarflokki.  Enda hrokinn mikill og
yfirlætingin hjá formannsefninu með eindæmum.

   Þá er vert að benda á að Illugi Gunnarsson og Guðlaugur Þór
Þórðarson leiða lista sjálfstæðismanna í Reykjavík. BÁÐIR yfir-
lýstir ESB-sinnar. Því báðir vilja þeir aðildarviðræður að ESB og
þá um leið aðildarumsókn að því. - Það liggur alveg skýrt fyrir !

  En þá er vert að spyrja. Hvernig í ÓSKÖPUNUM geta ESB-and-
stæðingar innan Sjálfstæðisflokks kosið þennan ESB-flokk lengur?
Með alla þessa yfirlýstu ESB-sinna á eftsu listum Sjálfstæðsflokks-
sins í  fjömennustu kjördæmum landsins.  Eru engin takmörk fyrir
slíku?

   L-listi fullveldisinna, hið hófsama borgaralega afl, hefur hins vegar
SkÝRA og AFDRÁTTARLAUSA stefnu í Evrópumálum.  Aðildarviðræður
og aðildarumsókn að ESB KEMUR ALLS EKKI TIL GREINA! Þá er einnig
vert að vekja athygli á niðurstöðu landsfundar Vinstri grænna.
Þar virðist ÖLLU haldið galopnu í Evrópumálum. ENGINN afgerandi
afstaða undirstrikuð gagnvart KRÖFU Samfylkingarinnar um umsókn
að ESB. Alla vega heldur vara-formaður Vinstri grænna ÖLLU opnu,
það má ræða ALLA hluti segir vara-formaðurinn.  Þannig að VG er
ALLS EKKI treystandi í Evrópumálum, enda mjög alþjóðasinnaður
flokkur í eðli sínu, og hafnar öllum þjóðlegum gildum og viðhorfum.

   Því er hér enn og aftur skorað á alla þjóðfrelsis- fullveldis, og sjálf-
stæðissinna að koma STRAX til liðs við L-lista fullveldissinna.  Því nú
hefur ALDREI verið eins þýðingarmíkið að sem flestir sannir fullveldis-
sinnar verði kosnir á þing, til að verja fullveldi og sjálfstæði Íslands.

  Burt með landsöluliðið !!

  Áfram fullvalda og sjálfstætt Ísland!

  Íslandi allt!    

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Jónas, æfinlega !

Fullveldis sinnar eru; og munu verða, velkomnir, innan herbúða sjóhunda- og bændanna hliðhollrar þungavigtarsveitar þeirra  Guðjóns Arnars, takist mér, sem fjölmörgum annarra velunnara GAK, og hans slektis, að snúa þeim; alfarið, frá öllum bábiljum, varðandi nýlenduvelda bandalag Evrópusambandsins, Guðmundur minn.

Svo sannarlega !

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 00:32

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Óskar minn. Treysti ALLS EKKI Frjálslyndum í Evrópumálum. Nú síðast
tefla þér fram  kratanum og eldheitium ESB-sinna Karli V Mattihassyni í Reykjavík Norður. Og fyrir nokkrum vikum var hinn eldheti ESB-sinni Jón Magnússon ÞINGFLOKKSFORMAÐUR Frjálslynda. Enda traustið og fylgið HRUNIÐ af Frjálslyndum í dag........ Skora á þig að koma yfir til okkar sönnu
Fullveldissinna!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 22.3.2009 kl. 00:47

3 identicon

Heill og sæll; sem fyrr, Guðmundur Jónas !

Jú; ég mun setja allan þann þunga, sem mögulegur er, á þá Guðjón Arnar, að þeir hverfi frá vondri villu, síns vegar - OG HAFNI AÐILD ÍSLANDS, UM ALDUR OG ÆFI, að nýlendu jálka bandalaginu, suður á Brussel völlum.

Svo; einfalt, skal það vera, Guðmundur minn !!!

Með hinum beztu kveðjum; sem hinum fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 22.3.2009 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband