Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
Skoskir sjómenn hlakka til ESB-aðildar Íslands
31.1.2009 | 12:00
Það að skoskir sjómenn vonist til að Ísland gangi í ESB sem
allra fyrst segir ALLT sem segja þarf hvað felist í ESB-aðild
hvað Ísland varðar. Helsta og dýrmætasta auðlind Íslendinga
fer yfir erlend yfirráð. Það er EKKERT flóknara en það! Kvót-
inn kemst með tíð og tíma í eigu útlendinga því við ESB-aðild
galopnast fyrir það að ESB-þegnar geti eignast meirihluta í
íslenzkum útgerðum. Tröllvaxnar fjárhæðir hverfa þannig út
úr íslenzku hagkerfi TIL FRAMBÚÐAR!
Er til of mikil mælst að ESB sinnar á Íslandi setjist niður og
reikni út það gífurlega efnahagslega tjón sem íslenzkur
efnahagur verður fyrir, BARA vegna þessa máls?
Sjá nánar meðf. frétt.
Skoskir sjómenn vilja að Ísland gangi í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Framsókn. Í Guðs bænum hættið nú þessum skrípaleik !
31.1.2009 | 00:30
Þetta sjónarspil Framsóknar að vilja að mynduð verði hér
afdönkuð vinstristjórn eins og gerðist hér of oft í eldgamla
daga hefur nú gengið sér til húðar. Því slík stjórn verður hvort
sem er hvorki fugl né fiskur. Því það er nefnilega eðli vinstri-
stjórna. Og því raunar alveg stórfurðulegt að hinn ungi for-
maður Framsóknar skuli hafa látið sér detta slíkt rugl í hug.
Enda komið á daginn. Dæmið gengur alls ekki upp. Og allra
síst við þær hrikalegu efnahagslegu aðstæður sem við er að
fást í dag.
Stjórnmálamenn hafa klúðrað meiriháttar málum á Íslandi í
dag. Því er mikið vantraust í gangi meðal þjóðarinnar gagnvart
stjórnmálamönnum. Meðan hreinsun og uppstokkun fer fram
í stjórnmálunum í kjölfar þingkosninga á einfaldlega að skipa
UTANÞINGSSTJÓRN, eins konar neyðarstjórn fagmanna. Óháð
hinum pólitískum flokkum, meðan þeir reka sína kosningabar-
áttu. - Því sú bráðabirgðastjórn sem kann að verða mynduð
af núverandi þingheimi mun meir og minna verða gagnslaus,
hver svo sem í hlut eiga. - Tilraunir til að mynda vinstristjórn
eru því algjör tímasóun, tímaskekkja, auk þess algjörlega
ábyrgðalaus. Því vinstristjórn er það alversta sem yfir þjóðina
getur komið í dag !
Því miður virðist forsetinn ekki skilja þetta. Enda hluti af
þeim íslenzka stjórnmálaheimi sem brást GJÖRSAMLEGA,
og sem einnig þarf að endurnýja!!
Þjóðlegi Frelsisflokkur. Hvenær kemur þú?
Telur forsendur fyrir stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Frjálslyndir ekki með. - Gott mál !
30.1.2009 | 15:37
Svo virðist að Frjálslyndir hafi fengið bankþanka og hætt við
að styðja þá vinstristjórn sem nú er verið að mynda. Það er gott
mál ! Því það var með öllu óskiljanlegt að Frjálslyndir, sem skil-
greint hafa sig sem hægramegin við miðju í íslenzkum stjórn-
málum skuli hafa dottið það í hug að ljá nafn sitt við vinstristjórn
daganna fyrir kosningar. Slíkt hefði þýtt endalok Frjálslyndra.
Það að Frjálslyndir skyldu bendla sig við þessar vinstrisinnuðu
stjórnarmyndunarviðræður virðist meiga skrifast á formann flokk-
sins. Hann virðist engann veginn huga að hinni pólitískri ímynd
sem hverjum flokki er svo mikilvægt að hafa. Enda fylgi flokksins
eftir því. Frjálslyndir hljóta því að gera verulegar breytingar á
flokksímyndinni á komandi flokksþingi. - Því flokkur sem skilgrein-
ir sig sem borgaralegan flokk á þjóðlegum grunni, og sem ekki á
sök á efnahagshruninu, ætti að eiga mikla möguleika í komandi
kosningum, ef mannval, flokkseining og ímynd standi fyrir sínu.
Frjálslyndir ekki með | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB vill gleypa Ísland
30.1.2009 | 11:26
Meiriháttar hvernig Brussel-ófreskjan sýnir sitt rétta andlit þessa
daga gagnvart Íslandi, þegar Ísland er hvað veikast í efnahagslegu
tilliti. Þegar efnahagslegt hrun hefur orðið og samningstaða Íslands
er nánast engin. Einkum að stærtum hluta vegna regluverka ESB
gegnum EES-samninginn (bankahrunið) og beitingu hryðjuverka ESB-
ríkis gagnvart Íslandi með þegjandi samþykki valdhafanna í Brussel.
Stækkunarstjóri ESB lofar Íslendingum skjótri inngöngu, og nánast
gulli og grænum skógum, enda miklu efir að slægast fyrir ESB, því
Ísland býr yfir miklum auðlindum sem sambandið horfir hýru auga til.
Ekki að furða þótt ESB vilji nú nota tækifærið og hreinlega að gleypa
Ísland.
Sem betur fer sér þjóðin gegnum ráðabrugg ESB-sinna og valdhaf-
anna í Brussel. Skv. nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins hefur
ríflegur meirihluti þjóðarinnar, tæp 60% lýst yfir andstöðu við aðild
Íslands að ESB. Enda sambandið nánast á brauðfótum og miklir
efnahagsleg vandamál á evrusvæðinu.
Vonandi að ESB-andstaða þjóðarinnar komi skýrt fram í komandi
þingkosningun, þannig að ESB-umræðan verði endanlega slegin út
af borðinu.
Fengjum forgang inn í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Halló, stjórnlagaþing? Dýr atvinnubótavinna það!
30.1.2009 | 00:26
Það að fara að stefna saman stjórnlagaþingi 63 kjörinna
fulltrúa í miðju kreppunni er dæmigert vinstrimennsku bruðl
og rugl. Kostnaður af slíku væri aldrei undir 300-400 milljón-
um króna ef ALLT er talið, því óvissuþættir eru það margir.
Dýr atvinnubótavinna það!
Vissulega má breyta stjórnarskránni á fjölmörgum sviðum.
Td er ekkert vit í öðru en að gera Ísland að einu kjördæmi.
Að kjósendur sjálfir raði á sinn flokkslista á kjördegi, þannig
að prófkjör og forvöl allskonar og öll sú spilling í kringum þá
hluti verði úr sögunni. Auk þess að aðskilja þingræðið og fram-
kvæmdavald algjörlega, þannig að ráðherrar verði aldrei þing-
menn. Ráherrar verði ákveðin tala og þingmönnum fækkað
með hliðsjón af því. Byrjum á slíkum sjálfsögðum hlutum fyrir
þingkosningarnar í vor. Hlutum sem liggur svo augljóst fyrir
að séu skynsamir og muni leiða til sparnaðar. - Hins vegar að
breyta stjórnarskránni til að geta stórskert fullveldi Íslands
eins og ESB-sinnar vilja í dag, á alls ekki að koma til greina!
Hugmynd hins vinstrisinnaða formanns Framsóknarflokksins
um stjórnlagaþing er því gjörsamlega út í hött. Tímaskekkja í
miðju kreppuástandi. Alþingiskosningar eru meir en nóg fyrir
þjóðina að ganga í gegnum næstu misseri, að enn eitt froðu-
snakkþingið bætist ekki við!
Formaður Framsóknar hefði frekar betur gert að standa í
lappirnar í Icesave-málinu og tefla fram skilyrðum þar, en
alls ekki í svona eindæmis rugli og bruðli varðandi stjórnlaga-
þing!
Samþykkja stjórnlagaþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Snýst grundvallahugsjón Frjálslynda um hvali ?
29.1.2009 | 11:25
Frjálslyndir hafa tekið þátt í að koma vinstristjórn á koppinn.
Flokkur sem hefur skilgreint sig sem hægramegin við miðju.
Samt er tekið þátt um myndun vinstristjórnar. Ekkert virðist
þó koma í veg fyrir vinstrimennsku Frjálslyndra en það hvort
veiða á hval eða ekki. Hvers konar stjórnmálaflokkur er þetta
eiginlega?
Annað hvort er flokkur hægra megin við miðju og frábiður sig
öllum stuðningi við hvers konar vinstrimennsku. Allra síst að
styðja myndun vinstristjórnar með vinstrisinnaða róttæklinga
þar innanborðs. Auðvitað á að leyfa hvalveiðar á fullu. En að
setja það sem einhverja frágangsök við stuðning við vinstri-
stjórn er gjörsamlega út í hött af flokki sem telur sig borgara-
sinnaðnn og hægra megin við miðju í íslenzkum stjórnmálum.
Er nema von að ímynd Frjálslyndra sé í molum og fylgið eftir
því?
Hvalurinn setur hnút í Frjálsynda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mikil er ábyrgð þin Framsókn !
29.1.2009 | 00:15
Og enn halda atvinnumótmælendur Vinstri grænna áfram
að mótmæla með skrílslátum. Nú er það málstofa NATO sem
er mótmælt, en yfirgnæfani meirihluti þjóðarinnar styður veru
Íslands í NATO.
Það er alveg ljóst að mótmæli þessi eru á vegum vinstrisinn-
aðra róttæklinga sem skipulögð eru af hinum vinstrisnnaða
öfgaflokki Vinstri-grænum. Flokki sem einskyns svífst til að
vinna gegn ríkjandi stjórnskipulagi, sbr. aðför forystu þeirra
gegn íslenzkri lögreglu. En það er einmitt þetta öfgalið til
vinstri sem Framsókn ætlar nú að leiða til valda í íslenzkum
stjórnmálum, ásamt Evrópusambandssinnuðum krötum.
Maður hugsar með hryllingi þegar þetta vinstra lið hefur
komist yfir löggæsluna í landinu með beinni aðild að lands-
stjórninni. Og það í boði Framsóknar. Því Framsókn ber
fulla ábyrgð á þeirri vinstristjórn sem nú er verið að mynda
þótt Framsókn sjálf sitji þar ekki við borð. Því aðal áhersla
VG í vinstristjórn verður m.a að lama sem mest löggæsluna
í landinu og allt er varðar öryggismál þjóðarinnar, og fær
til þess fullan stuðning marga vinstrisinna úr Samfylkingu.
Ábyrgð Framsóknar er því mikil! Alveg með ólíkindum hvernig
einn flokkur getur umpólast á einni nóttu. Ekki bara það að
gangast ESB-trúboðinu á hönd, heldur líka vinstrisinnuðum
róttæklingum. Uppvöðsluskríl!
Lögregla beitti piparúða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað eigum við þjóðlegir borgarasinnar að kjósa ?
28.1.2009 | 00:27
Ef Frjálslyndir taka þá undarlegu afstöðu sem borgaralegur
flokkur að fara að styðja við bakið á þeirri vinstristjórn sem nú er
verið að setja á koppinn, mun hann gera afdrífarík pólitísk mistök.
Mistök, sem gæti hreinlega riðið honum að falli í komandi kosningum.
Á mið/hægri kannti íslenzkra stjórnmála virðist ríkja pólitísk upp-
lausn. Sjálfstæðisflokkurinn er illa farinn eftir efnahagshrunið. Auk
þess olli það miklum vonbrigðum meðal þeirra fjölmörgu sem að-
hyllast borgaraleg viðhorf á þjóðlegum grunni þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn tók illu heilli upp á því pólitíska rugli að hefja ríkisstjórnar-
samstarf við hina Evrópusambandsinnuðu Samfylkingu, í stað þess
að byggja upp borgaralega blokk í íslenzkum stjórnmálum. - Þá
veldur það einnig miklum vonbrigðum hvernig miðjuflokkurinn Fram-
sókn svikur nú sitt þjóðlega miðjufylgi og kúvendir í sínum hugsjón-
argrundvelli yfir í að vera vinstrisinnaður krataflokkur með stefnu á
ESB-aðild. Við slíkar pólitískar aðstæður ætti að vera kjörið tækifæri
hjá Frjálslyndum að sópa til sín hið þjóðlega óánægjufylgi á mið/
kannti íslenzkra stjórnmála. Ef ekki nú, þá ALDREI! Hin reikula
forysta Frjálslyndra til langs tíma, virðist hins vegar alls ekki skilja
sinn vitjunartíma, og er orðin þátttakandi í viðræðum um myndun
hreinræktaðar vinstristjórnar. Virðist ætla að gera sömu mistökin
og flokksforysta Sjálfstæðisflokksins við myndun núverandi ríkis-
stjórnar. Er nema von að ímynd Frjálslyndra sé í molum og fylgið
eftir því?
Annars er það orðið mikið áhyggjuefni hvert við kjósendur sem
aðhyllumst þjóðleg borgaraleg viðhorf, en erum einnig BÁLREIÐ yfir
því mikla efnahagshruni sem blasir við þjóðinni í dag, eigum að
snúa okkur í komandi kosningum. Við kjósendur sem villjum láta
ALLA þá sæta ábyrgð sem hruninu olli, um leið og byggt verði upp
nýtt og frjálst Ísland. Við sem erum ekki frjálshyggjusinnar þótt
borgaraleg viðhorf styðjum. Við sem viljum sjálfstætt og frjálst
Ísland utan hiðs miðstyrða Evrópusambands.
Já. Hvað eigum við að kjósa? Hverjum er treystandi fyrir þjóð-
legum borgaralegum viðhorfum í íslenzkum stjórnmálum í dag?
Spyr sá sem ekki veit!
Óvíst með Frjálslynda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinstrisinnaðir öfgamenn í ríkisstjórn Íslands? Hvað með Frjálslynda?
27.1.2009 | 00:21
Lengi getur vont versnað. Eftir að hafa haft gjörónýtan and-
þjóðlegan vinstriflokk í ríkisstjórn á annað ár, sem hefur það
helsta markmið að innlima frjálst Ísland inní Sambandsríki
Evrópu með tilheyrandi fullveldisafsali og ósjálfstæði, á nú að
bæta við í ríkisstjórnina öfgasinnuðum vinstrimönnum. Rót-
tæklingum sem eru uppvísir að því að hafa leynt og ljóst unnið
gegn lögreglunni í baráttu hennar gegn uppreisn öfgamanna
til vinstri og anarkistum undanfarin misseri. Gegn núverandi
þjóðskipulagi! Og það svo að Landssamband lögreglumanna
áforma nú að segja sig úr BSRB sem einmitt eru undir stjórn
þingmanns þessa flokks þessara öfgamanna. Og allt á þetta
að gerast í boði hinnar,,nýju"Framsóknar Sigmundar Davíðs.
- Hvers konar OFUR-RUGL er þetta eiginlega? Erum við ekki
uppi á 21 öldinni?
Auðvitað hafa gerst hrikaleg mistök í hagsstjórn á umliðnum
árum undir regluverki EES-samningsins, sem aldrei hefði átt
að gera. - Það breytir því ekki að til þess að vinna okkur út
úr ruglinu eigum við alls ekki að hverfa marga áratugi aftur í
tímann og taka upp sósíaliska stjórnarhætti. Þar sem þjóðinni
verði allar bjargir bannaðar. Því innan hinna vinstrisinnuðu rót-
tæklinga eru stórir hópar umhverfishryðjuverkasinna sem setja
blátt bann á að hin íslenzka þjóð geti nýtt sínar auðlindir sér til
uppbyggar og hagsældar. En Þetta á að bjóða þjóðinni upp á
gegn krepunni í dag. Afdánkaða vinstristjórn, sósíalisma, til að
viðhalda eymdinni og volæðinu, kjöraðstæðum vinstrimennskunar
í boði ,,nýrrar" Framsóknar!
Því verður alls ekki trúað að Frjálslyndir verji slíka afturhalds-
stjórn vantrausti. Þvert á móti eiga Frjálslyndir nú gullið tæki-
færi til að bregðast hart gegn ráðabruggi um myndun vinstri-
stjórnar. Standa vörð um þjóðleg borgaraleg gildi ástam öllum
öðrum þjóðlegum öflum. Ekki síst þar sem Framsókn hefur nú
gjörsamlega brugðist hlutverki sínu sem þjóðlegt miðjuafl, en
þessi í stað gerst Evrópusambandssinnaður krataflokkur, með
ofuráherslur á vinstrisinnuð viðhorf og samstarf við vinstri-
sinnaða róttæklina.
Vonandi að Sjálfstæðisflokkurinn læri nú af sínum mistökum,
efnahagslegum, og ekki síst samstarfinu nú til vinstri við hina
Evrópusinnuðu Samfylkingu. -
Þjóðleg borgaraleg öfl eiga ALLTAF að halda vinstriöflunum í
skefjum. Vonandi eru skörp skil í íslenzkum stjórnmálum að
myndast í dag. - Og það til frambúðar!
Lögreglumenn skoða úrsögn úr BSRB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanþingsstjórn! Alls ekki vinstristjórn!
26.1.2009 | 14:31
Þess ber að fagna að ríkisstjórnin er fallin. Sérstaklega að hin
óábyrgða og and-þjóðlega Samfylking skuli nú áhrifalaus. Voru
mikil pólitísk mistök hjá Sjálfstæðisflokknum að leiða slíkan
Evrópusambandssinnaðan flokk til vegs og virðingar í íslenzkum
stjórnmálum. Flokk sem enga trú hefur á ÍSLENZKRI framtíð og
sjálfstæði þjóðarinnar.
Þar sem algjört vantraust er í dag meðal þjóðarinnar á núver-
andi stjórnmálamenn ber forseta að rjúfa þing og skipa utan-
þingsstjórn hinna færustu manna. Útilokað er að núverandi
stjórnmálaflokkar geti stjórnað landinu af viti kafi í kosninga-
baráttu, í því efnahagslegu neyðarástandi sem nú ríkir. Og
allra síst að hér verði mynduð vinstristjórn. Það yrði það versta
sem yfir þjóðina gæti komið ofan á allt annað. Sömuleiðis yrði
þjóðstjórn bein ávísun á stöðnun og stjórnleysi.
Krafa þjóðarinnar til forseta er að hann myndi þegar í stað
utanþingsstjórn. Það er það eina vitiborna í stöðinni í dag!
Stjórnarsamstarfi lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |